{"id":47894,"date":"2026-05-09T10:27:13","date_gmt":"2026-05-09T10:27:13","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=47894"},"modified":"2026-05-09T10:57:24","modified_gmt":"2026-05-09T10:57:24","slug":"af-hladbordum-pallbordum-fafnisgrasi-og-bystrom","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2026\/05\/09\/af-hladbordum-pallbordum-fafnisgrasi-og-bystrom\/","title":{"rendered":"Af hla\u00f0bor\u00f0um, pallbor\u00f0um, f\u00e1fnisgrasi og Bystr\u00f6m"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"47894\" class=\"elementor elementor-47894\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-621c977e elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"621c977e\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-104e7782\" data-id=\"104e7782\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-5f1eddec elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"5f1eddec\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>Bumbubelgir \u00e1 mi\u00f0jum aldri muna vel eftir vi\u00f0ureignum Fram og Vals \u00ed lok \u00e1ttunda \u00e1ratugarins, \u00feetta voru a\u00f0al kl\u00fabbarnir, innih\u00e9ldu a\u00f0al stj\u00f6rnurnar, saklausari t\u00edmar \u00e1\u00f0ur en J\u00far\u00f3peningar f\u00f3ru a\u00f0 gildishla\u00f0a sm\u00e1kl\u00fabba um of. Allar g\u00f3\u00f0ar v\u00e6ttir geta enn \u00ed dag orna\u00f0 s\u00e9r vi\u00f0 3-2 leikinn 1990, \u00fear sem vi\u00f0 vorum tveimur m\u00f6rkum undir og trygg\u00f0um okkur titilinn me\u00f0 \u00feremur m\u00f6rkum \u00ed s\u00ed\u00f0ari h\u00e1lfleik. En l\u00edfi\u00f0 er t\u00e1radalur og enn situr \u00ed m\u00e9r einhver bikarleikur nokkru fyrr, e\u00f0a sama \u00e1r, \u00fear sem vi\u00f0 t\u00f6pu\u00f0um \u00f3sanngjarnt \u00e1 Hl\u00ed\u00f0arenda (man enn hvar \u00e9g st\u00f3\u00f0 \u00ed malarst\u00fakunni). Ohh \u2013 n\u00fa v\u00e6ri gott a\u00f0 fletta upp \u00ed b\u00f3kum V\u00ed\u00f0is Sigur\u00f0ssonar \u00ed b\u00f3kasafninu hans Stebba P\u00e1ls, \u00fear sem KS\u00cd vefurinn hj\u00e1lpar manni ekkert vi\u00f0 a\u00f0 rifja upp gamlar perlur e\u00f0a \u00fdfa upp s\u00e1rar minningar.<\/p><p>Hvar er annars Stebbi P\u00e1ls, ma\u00f0urinn sem er \u00ed frambo\u00f0i fyrir Vinstri\u00f0 og \u00e1 a\u00f0 s\u00e6kja allar fj\u00f6ldasamkomur sem \u00feessar, n\u00fana r\u00e9tt fyrir kosningar. Hann hef\u00f0i geta\u00f0 pota\u00f0 \u00ed einhverja valsara, skrifa\u00f0 hnyttna leikl\u00fdsingu \u00fear sem fokd\u00fdru li\u00f0i \u00feeirra og mann\u00fdgum \u00fej\u00e1lfara v\u00e6ri hampa\u00f0 \u00ed hv\u00edvetna, fyrir utan a\u00f0 b\u00faa \u00ed t\u00fanf\u00e6ti Hl\u00ed\u00f0arenda. En nei, t\u00f3ndaufur kosningastj\u00f3ri haf\u00f0i b\u00f3ka\u00f0 hann anna\u00f0 og \u00fear vi\u00f0 sat, Stef\u00e1n, sem er v\u00edst 80% inni samkv\u00e6mt s\u00ed\u00f0ustu t\u00f6lum \u00feurfti v\u00edst a\u00f0 kokka ofan \u00ed fri\u00f0arsinna \u00ed kveld og stelast til a\u00f0 horfa \u00e1 leikinn \u00e1 s\u00ed\u00f0u 390 \u00e1 textavarpinu. \u00dea\u00f0 sem gerir \u00feetta enn undarlegra er a\u00f0 Stef\u00e1n kann bara a\u00f0 steikja \u00feverskorinn kj\u00f6tb\u00fa\u00f0ing. Fyrir viki\u00f0 t\u00f3k Sk\u00fali Helga \u00f6ll laus atkv\u00e6\u00f0i yfir til s\u00edn \u00ed kveld, en samkv\u00e6mt k\u00f6nnunum eru 93% l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 hann s\u00e9 inni. Okkur veitir ekkert af fleiri Fr\u00f6mmurum \u00ed borgarstj\u00f3rn.<\/p><p>Fyrir leik var bl\u00e1si\u00f0 til alv\u00f6ru upphitunar \u00fear sem go\u00f0sagnir f\u00e9laganna hitu\u00f0u upp \u00ed pallbor\u00f0sumr\u00e6\u00f0um sem \u00deorkell Gunnar Sigurbj\u00f6rnsson \u00e1tti a\u00f0 st\u00fdra, en Kristj\u00e1n Freyr t\u00f3k vi\u00f0 keflinu vegna veikinda og st\u00fdr\u00f0i af festu, \u00e1 me\u00f0an h\u00e6gt var a\u00f0 gra\u00f0ga \u00ed sig lambakj\u00f6ti og bernaise af hla\u00f0bor\u00f0i. \u00c1\u00f0ur en vi\u00f0 sn\u00faum okkur a\u00f0 pallbor\u00f0inu, \u00fe\u00e1 \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0eins a\u00f0 tala um f\u00edlinn \u00ed herberginu, hvernig bernaise (oft k\u00f6llu\u00f0 bernes til einf\u00f6ldunar) s\u00f3san t\u00f3k yfir allt kjetmeti \u00e1 landinu og m\u00e1 ekki vera kj\u00f6ttuttla \u00e1 bo\u00f0st\u00f3lnum \u00e1n \u00feess a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 b\u00f6\u00f0u\u00f0 \u00ed bernaise s\u00f3su. Bernaise s\u00f3sa \u00e1 r\u00e6tur s\u00ednar \u00ed franskri matarger\u00f0 og er skyld Hollandaise s\u00f3sunni, en f\u00e6r sitt s\u00e9rstaka karakterbrag\u00f0 fr\u00e1 f\u00e1fnisgrasi, ediki og pipar. Upphaflega uppskriftin inniheldur eggjarau\u00f0ur, smjer og essens \u00e1samt fyrrnefndum hr\u00e1efnum, en m\u00e6j\u00f3nes \u00fatg\u00e1fan sem er n\u00fana yfir og alltumlykjandi, inniheldur\u2026tja, m\u00e6j\u00f3nes. \u00deetta er efni \u00ed a.m.k. eina doktorsritger\u00f0 fyrir matarsagnfr\u00e6\u00f0inga framt\u00ed\u00f0arinnar, hvernig bernesinn t\u00f3k allt yfir og pipar- og hv\u00edtlaukss\u00f3surnar lutu \u00ed gras.<\/p><p>Pallbor\u00f0i\u00f0 var f\u00ednt og var vel m\u00e6tt og st\u00f3\u00f0u P\u00e9tur Ormslev, Almarr Ormarsson og J\u00f3hann Alfre\u00f0 sig me\u00f0 pr\u00ed\u00f0i og var ekki t\u00f6lu\u00f0 vitleysan \u00fear. Ekki voru margir Valmenn m\u00e6ttir enda standa hand- og k\u00f6rfuboltadeildirnar \u00feeirra \u00ed st\u00f3rr\u00e6\u00f0um og er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 vera fullt starf a\u00f0 vera Valsari a\u00f0 undanf\u00f6rnu. Allir og \u00f6mmur \u00feeirra voru m\u00e6tt \u00e1 leikinn \u00ed bl\u00e1a hlutanum; Gu\u00f0j\u00f3nsen klani\u00f0 komplett, Addi \u00ed bankanum, Kjarri tannl\u00e6knir, Binni Hjartar, fr\u00fa Ragnhei\u00f0ur og svo m\u00e6tti lengi telja, allir nema Stebbi P\u00e1ls.<\/p><p>Gengi li\u00f0anna fram eftir m\u00f3ti hefur veri\u00f0 nokku\u00f0 svipa\u00f0, \u00fe\u00f3 svo a\u00f0 spekingarnir s\u00e9u ekki vissir um vegfer\u00f0 Vals, eru \u00feeir allir samm\u00e1la um a\u00f0 li\u00f0 Fram s\u00e9 heitara en kreditkort borgarstj\u00f3ra um \u00feessar mundir. B\u00e6\u00f0i li\u00f0 hafa unni\u00f0 FH og \u00cdBV, en n\u00e1\u00f0 a\u00f0 tapa fyrir li\u00f0i \u00de\u00f3rs. Valsmenn t\u00f6pu\u00f0u illa fyrir kr \u00e1 heimavelli \u00ed s\u00ed\u00f0ustu umfer\u00f0, \u00e1 me\u00f0an Fram vann seiglusigur \u00ed Hafnarfir\u00f0inum, og \u00fea\u00f0 \u00e1 grasi.<\/p><p>Byrjunarli\u00f0i\u00f0 var eins, l\u00edklega \u00feri\u00f0ja leikinn \u00ed r\u00f6\u00f0 eftir a\u00f0 Fred n\u00e1\u00f0i fullri heilsu. \u00dei\u00f0 \u00feekki\u00f0 \u00feetta; Sigurj\u00f3n, Kyle og \u00deorri aftast, Halli og Kennie \u00ed v\u00e6ngbakv\u00f6r\u00f0um, Simon \u00fear fyrir framan og svo Fred og \u00c6gir Jarl inn\u00e1 mi\u00f0junni og Vuk og Atli \u00de\u00f3r frammi.<\/p><p>Allt var eins og \u00fea\u00f0 \u00e1tti a\u00f0 vera \u00ed upphafi leiks, gott ve\u00f0ur, Geiramenn \u00ed fantaformi me\u00f0 helstu slagarana tilb\u00fana, Kristj\u00e1n Freyr b\u00fainn a\u00f0 skipta yfir \u00e1 trommurnar eftir pallbor\u00f0i\u00f0 og stemmingin almennt g\u00f3\u00f0. Eftir snarpa byrjun okkar manna \u00fe\u00e1 skoru\u00f0u Valsmenn eftir r\u00fama m\u00edn\u00fatu eftir vonda aukaspyrnu fr\u00e1 Fred og enn verri \u00feversendingu fr\u00e1 Simon.<\/p><p>En Framli\u00f0i\u00f0 lag\u00f0ist \u00e1 Valsmenn og h\u00e9lt \u00feeim \u00ed spennitreyju \u00fear til v\u00f6rnin gaf sig og Vuk vann boltann, kom honum yfir \u00e1 Atla \u00de\u00f3r sem sendi Kennie \u00ed gegn og b\u00e6ng. Markapelinn \u00e1 loft og allir s\u00e1ttir.<\/p><p>En pelinn var varla b\u00fainn a\u00f0 skila s\u00e9r aftur til eigandans \u00feegar Valsmenn voru b\u00fanir a\u00f0 skora aftur \u00e1 14 m\u00edn. \u00dear f\u00f3r sending og hlaup saman og skyndilega var allt or\u00f0i\u00f0 fremur s\u00fart aftur.<\/p><p>\u00dea\u00f0 sem eftir var h\u00e1lfleiksins ger\u00f0u Frammarar vel \u00ed a\u00f0 leggjast h\u00e1tt \u00e1 Valsli\u00f0i\u00f0 en fyrir viki\u00f0 var li\u00f0i\u00f0 nokku\u00f0 f\u00e1li\u00f0a\u00f0 til baka og \u00e1ttu Valsarar einhverja s\u00e9nsa \u00e1 a\u00f0 gera eitthva\u00f0 me\u00f0 \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 fengum endalaus horn og nokkra skots\u00e9nsa en Valsmenn hentu s\u00e9r fyrir allt og svo er \u00feessi markma\u00f0ur \u00feeirra alveg \u00e1g\u00e6tur, svo \u00fev\u00ed s\u00e9 haldi\u00f0 til haga. R\u00e9tt fyrir h\u00e1lfleikinn \u00e1tti Viktor Freyr v\u00f6rslu umfer\u00f0arinnar er einn Valsarinn var kominn \u00ed gegn, Framli\u00f0ar geystust upp v\u00f6llinn og einn Valsari \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 sparka Atla \u00de\u00f3r ni\u00f0ur \u00ed teignum og gat d\u00f3marinn ekkert gert anna\u00f0 en a\u00f0 d\u00e6ma v\u00edti. Simon Tibbling skora\u00f0i af \u00f6ryggi og allt var\u00f0 fallegra aftur. \u00cd uppb\u00f3tart\u00edma \u00e1ttum vi\u00f0 eitt f\u00e6ri til, en Kennie n\u00e1\u00f0i ekki n\u00e6gilega g\u00f3\u00f0u skoti.<\/p><p>H\u00e1lfleikur \u00ed \u00feessum st\u00f3rskemmtilega leik, \u00fear sem ma\u00f0ur var viss um a\u00f0 \u00fej\u00e1lfararnir v\u00e6ru me\u00f0 nokku\u00f0 svipa\u00f0a h\u00e1lfleiksr\u00e6\u00f0u, \u201eh\u00e6tti\u00f0 a\u00f0 opna ykkur svona miki\u00f0 baka til\u201c. Samt byrja\u00f0i seinni h\u00e1lfleikur me\u00f0 miklum l\u00e1tum, \u00fear sem b\u00e6\u00f0i li\u00f0 \u00e1ttu g\u00f3\u00f0 f\u00e6ri. Fyrst \u00e1ttu Valsarar f\u00e6ri sem Viktor var\u00f0i au\u00f0veldlega, en \u00f6rstuttu s\u00ed\u00f0ar \u00e1tti Atli \u00de\u00f3r gott skot eftir undirb\u00faning Vuk, enn \u00fe\u00e1 var vari\u00f0.<\/p><p>Eftir \u00feetta r\u00f3a\u00f0ist leikurinn nokku\u00f0, en vi\u00f0 vorum alltaf me\u00f0 frumkv\u00e6\u00f0i\u00f0. Eftir klukkut\u00edma \u00e1kva\u00f0 einn Valsarinn a\u00f0 strauja Kennie, enginn veit nema d\u00f3marinn hvers vegna \u00feetta var ekki gult spjald og var Kennie ekki alveg heill heilsu eftir \u00feessa \u00e1r\u00e1s. Stuttu seinna \u00e1kva\u00f0 \u00feessi sami Valsari a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri hann me\u00f0 fr\u00edtt spil og sparka\u00f0i Fred ni\u00f0ur, en reyndar var hann ver\u00f0launa\u00f0ur me\u00f0 gulu korti fyrir \u00fea\u00f0, sem hef\u00f0i au\u00f0vita\u00f0 \u00e1tt a\u00f0 vera seinna gula.<\/p><p>\u00c1fram var barist og ger\u00f0i Fred allt r\u00e9tt eftir 70 m\u00edn en allt kom fyrir ekki, enn var\u00f0i \u00feessi markma\u00f0ur \u00feeirra. Stuttu s\u00ed\u00f0ar kom fyrsta skipting okkar er Freyr kom inn\u00e1 fyrir Atla \u00de\u00f3r og var Freyr l\u00edflegur \u00fea\u00f0 sem eftir lif\u00f0i leiks. Valsmenn reyndu a\u00f0 h\u00e6gja \u00e1 leiknum og virtust hafa endalausar skiptingar.<\/p><p>\u00deegar 15 m\u00edn lif\u00f0u leiks var mikill atgangur fyrir framan Valsmarki\u00f0 sem enda\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Kennie pota\u00f0i boltanum inn og allt trylltist. \u00de\u00e1 flauta\u00f0i d\u00f3marinn brot, en \u00fea\u00f0 virtist n\u00fa ekki vera miki\u00f0 \u00ed \u00feessu.<\/p><p>\u00deegar um 10 m\u00edn voru eftir kom Bystr\u00f6m inn\u00e1 fyrir Fred, sem var alveg b\u00fainn \u00e1 \u00fev\u00ed enda b\u00fainn a\u00f0 skila fr\u00e1b\u00e6ru dagsverki. Eftir nokkrar hornspyrnur okkar virtist leikurinn vera a\u00f0 fjara \u00fat. M\u00e1r kom inn fyrir Vuk og a\u00f0eins var b\u00e6tt fj\u00f3rum m\u00edn\u00fatum vi\u00f0 leikt\u00edmann, \u00fer\u00e1tt fyrir allmargar skiptingar og hnjask.<\/p><p>Um \u00fea\u00f0 bil \u00feegar \u00feessar fj\u00f3rar m\u00edn\u00fatur voru a\u00f0 renna sitt skei\u00f0, h\u00e6g\u00f0ist allt \u00ed einu \u00e1 t\u00edmanum eins og \u00ed Matrix myndinni. Kyle gaf fyrir \u00e1 Jakob Bystr\u00f6m, sem gaf s\u00e9r g\u00f3\u00f0an t\u00edma \u00ed a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti boltanum, leggja hann vandlega fyrir sig og \u00feruma honum \u00ed samskeytin. Allt sprakk, allir g\u00f6rgu\u00f0u, allir d\u00f6nsu\u00f0u, allir f\u00f6\u00f0mu\u00f0ust \u2013 \u00fev\u00edl\u00edkt mark, \u00fev\u00edl\u00edk stund, \u00fev\u00edl\u00edk stund a\u00f0 vera Frammari, \u00fev\u00edl\u00edk stund a\u00f0 vera Frammari og \u00e1 sta\u00f0num\u2026<\/p><p>Hva\u00f0 getur ma\u00f0ur sagt eftir svona kveld, \u00fear sem allt var fullkomi\u00f0; maturinn, m\u00e6tingin, frammista\u00f0an og stu\u00f0ningurinn. Sj\u00e1umst \u00e1 n\u00e6sta leik..<\/p><p>Valur Nor\u00f0ri.<br \/><br \/>Fullt af skemmtilegum myndum fr\u00e1 KST h\u00e9rna: <a href=\"https:\/\/www.flickr.com\/photos\/99255499@N07\/albums\/72177720333539775\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">https:\/\/www.flickr.com\/photos\/99255499@N07\/albums\/72177720333539775\/<\/a><\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Bumbubelgir \u00e1 mi\u00f0jum aldri muna vel eftir vi\u00f0ureignum Fram og Vals \u00ed lok \u00e1ttunda \u00e1ratugarins, \u00feetta voru a\u00f0al kl\u00fabbarnir, innih\u00e9ldu a\u00f0al stj\u00f6rnurnar, saklausari t\u00edmar \u00e1\u00f0ur en J\u00far\u00f3peningar f\u00f3ru a\u00f0 gildishla\u00f0a [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":47895,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-47894","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/Bystrom-gen-val-I.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47894","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=47894"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47894\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":47902,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/47894\/revisions\/47902"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/47895"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=47894"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=47894"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=47894"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}