{"id":48103,"date":"2026-05-30T08:45:32","date_gmt":"2026-05-30T08:45:32","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=48103"},"modified":"2026-05-30T11:32:57","modified_gmt":"2026-05-30T11:32:57","slug":"gullskorinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2026\/05\/30\/gullskorinn\/","title":{"rendered":"Gullsk\u00f3rinn"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"48103\" class=\"elementor elementor-48103\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-42276fd6 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"42276fd6\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-70a5216a\" data-id=\"70a5216a\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-45ce70c4 elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"45ce70c4\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>A\u00f0 vinna f\u00f3tboltaleiki er g\u00f3\u00f0 skemmtun. Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar hefur enga t\u00f6lu \u00e1 \u00f6llum \u00feeim tapleikjum sem hann hefur skrifa\u00f0 um fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 T\u00f3ti \u00ed\u00fer\u00f3ttafulltr\u00fai plata\u00f0i hann fyrst til a\u00f0 skrifa leikl\u00fdsingar af Framleikjum fyrir hundra\u00f0 \u00e1rum \u2013 og alltaf voru tapleikirnir erfi\u00f0astir. A\u00f0 skrifa eitthv\u00f0 hnytti\u00f0 og upp\u00f6rvandi eftir a\u00f0 rau\u00f0h\u00e6r\u00f0ur t\u00e1ningur \u00ed HK skalla\u00f0i \u00ed neti\u00f0 \u00e1 lokam\u00edn\u00fatunum \u00ed k\u00f3rnum \u00ed enn einni ni\u00f0url\u00e6gingunni \u00ed Lengjunni e\u00f0a e-\u00f0 \u00e1l\u00edka. Lesturinn var s\u00f6mulei\u00f0is \u00f3verulegur. Hva\u00f0a skyns\u00f6m manneskja gengur l\u00edka \u00feau svipug\u00f6ng a\u00f0 lesa um tapleik s\u00edns li\u00f0s?<\/p><p>\u00dea\u00f0 a\u00f0 skrifa um sigurleiki er hins vegar leikur einn. Allir lesendur eru \u00ed sk\u00fdjunum og vilja bara mj\u00f3lka endorf\u00ednkirtilinn \u00f6rl\u00edti\u00f0 lengur. \u00dea\u00f0 a\u00f0 setjast ni\u00f0ur til a\u00f0 fjalla um 4:3 sigur \u00e1 UBK er \u00fev\u00ed ekki s\u00e9rlega kv\u00ed\u00f0avaldandi&#8230;<\/p><p>Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar t\u00f3k lei\u00f0 18 \u00far Hl\u00ed\u00f0unum laust fyrir klukkan fimm til a\u00f0 n\u00e1 \u00ed t\u00edma fyrir steikarhla\u00f0bor\u00f0i\u00f0 sem bo\u00f0i\u00f0 var upp\u00e1 \u00ed \u00dalfars\u00e1rdalnum. Bor\u00f0in svignu\u00f0u af nautasteik, s\u00f3su og salati og fj\u00f6ldi f\u00f3lks l\u00e9t sig ekki vanta. \u00cd\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttama\u00f0urinn \u00deorkell Gunnar st\u00fdr\u00f0i pallbor\u00f0i \u00fear sem sparkspekingar tj\u00e1\u00f0u sig um komandi leik. Salurinn var fullskipa\u00f0ur. Fyrir okkur sem munum eftir leikjum \u00ed Safam\u00fdri e\u00f0a \u00e1 n\u00fdtilb\u00fanum \u00e6fingavellinum \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal \u00ed Lengjudeildinni, \u00fear sem n\u00e1nast var h\u00e6gt a\u00f0 heilsa hverjum einasta vallargesti me\u00f0 nafni, eru \u00feetta einst\u00f6k og st\u00f3rkostleg vi\u00f0brig\u00f0i. F\u00e9lagi\u00f0 okkar er komi\u00f0 \u00e1 sta\u00f0 sem ekkert okkar hef\u00f0i geta\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 sig dreyma um fyrir \u00e1ratug! Takk, \u00fei\u00f0 \u00f6ll sem komu\u00f0 a\u00f0 \u00feessu verkefni!<\/p><p>Li\u00f0suppstillingin var s\u00fa sama og \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6num fyrir viku. Viktor \u00ed marki. \u00deorri, Sigurj\u00f3n og Kyle \u00ed varnarl\u00ednunni me\u00f0 Halla sem bakv\u00f6r\u00f0\/kantmann. \u00c6gir Jarl aftastur \u00e1 mi\u00f0junni, Fred og Freyr \u00fear fyrir framan. Jakob Bystr\u00f6m og R\u00f3bert frammi og Kennie \u00fear sem honum s\u00fdndist hverju sinni. Simon og Atli \u00de\u00f3r voru b\u00e1\u00f0ir utan h\u00f3ps \u2013 v\u00e6ntanlega vegna mei\u00f0sla.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn r\u00f6lti ni\u00f0ur \u00far veislusalnum og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r ekki s\u00e6ti \u00ed st\u00fakunni, \u00fear sem n\u00e6\u00f0ingsvindur var \u00e1 leiknum l\u00edkt og einkennt hefur flesta leiki \u00ed sumar. \u00deess \u00ed sta\u00f0 st\u00f3\u00f0 hann efst \u00ed st\u00fakunni me\u00f0 f\u00e9laga Rabba, \u00deorbirni Atla, fr\u00fa Ragnhei\u00f0i, Stef\u00e1ni nafna og Kristj\u00e1ni Hn\u00edfsdalstrymbli eftir a\u00f0 komi\u00f0 var a\u00f0eins inn \u00ed leikinn. \u00deetta var gl\u00e6silegur h\u00f3pur a\u00f0 vallars\u00fdn og innr\u00e6ti.<\/p><p>Fram byrja\u00f0i me\u00f0 l\u00e1tum og f\u00e9kk fyrstu f\u00e6rin \u00e1 upphafsm\u00edn\u00fatunum. Strax \u00e1 3. m\u00edn\u00fatu \u00e1tti Halli gullfallega sendingu inn \u00ed teiginn \u00fear sem Kennie st\u00f6kk h\u00e6st allra og skalla\u00f0i \u00ed bl\u00e1horni\u00f0, \u00f3verjandi fyrir markv\u00f6r\u00f0 UBK. \u00de\u00f3tt enginn v\u00e6ri markafleygurinn ur\u00f0u fagna\u00f0arl\u00e6tin \u00e1 p\u00f6llunum innileg. Enginn haf\u00f0i b\u00faist vi\u00f0 a\u00f0 taka forystuna svo snemma. Tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar var sta\u00f0an or\u00f0in 2:0. Freyr \u00e1tti stutt sendingu \u00e1 Kennie sem f\u00edfla\u00f0i varnarmanninn sem haf\u00f0i reynt a\u00f0 verjast honum, sneri s\u00e9r \u00ed gegnum v\u00f6rnina og skora\u00f0i au\u00f0veldlega. Fram var komi\u00f0 me\u00f0 \u00f6rugga forystu og leikurinn vart byrja\u00f0ur!<\/p><p>R\u00f3bert var flagga\u00f0ur rangst\u00e6\u00f0ur r\u00e9tt eftir seinna marki\u00f0 og Viktor var\u00f0i \u00ed tv\u00edgang vel fr\u00e1 gestunum, sem voru samt fur\u00f0udaufir \u00ed leiknum. Framarar h\u00e9ldu \u00e1fram a\u00f0 s\u00e6kja og fengu hvert t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 \u00e1 eftir \u00f6\u00f0ru. R\u00f3bert \u00e1tti skot \u00e1 19. m\u00edn\u00fatu sem var vari\u00f0 og s\u00ed\u00f0ar var Kennie tvisvar n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 skora. \u00c1 31. m\u00edn\u00fatu fengu gestirnir umdeilanlega hornspyrnu, sem okkar menn v\u00f6r\u00f0ust \u00e6vint\u00fdralega illa og sta\u00f0an var\u00f0 allt \u00ed einu 2:1.<\/p><p>Framarar bl\u00e9su aftur til s\u00f3knar eftir marki\u00f0 og \u00feeir Fred og Freyr \u00e1ttu g\u00f3\u00f0a atl\u00f6gu a\u00f0 markinu strax \u00e1 n\u00e6stu m\u00edn\u00fatu. Kyle lag\u00f0ist meiddur \u00ed j\u00f6r\u00f0ina og Israel leysti hann af h\u00f3lmi. F\u00e9lagarnir Fred og Freyr h\u00e9ldu \u00e1fram a\u00f0 skemmta \u00f6llum vi\u00f0st\u00f6ddum me\u00f0 frammist\u00f6\u00f0u sinni. Freyr var einfaldlega st\u00f3rkostlegur \u00ed kv\u00f6ld og \u00fea\u00f0 er gj\u00f6rsamlega \u00f3verjandi a\u00f0 hafa hann ekki \u00ed byrjunarli\u00f0i hj\u00e1 okkur eins og sta\u00f0an er \u00ed dag \u2013 \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0a kan\u00f3nur vi\u00f0 kunnum a\u00f0 vera me\u00f0 \u00e1 bekknum.<\/p><p>\u00c1 41. m\u00edn\u00fatu t\u00f3k Fram svo l\u00f6ngu ver\u00f0skulda\u00f0a forystu \u00feegar Fred stakk s\u00e9r \u00ed gegnum Blikav\u00f6rnina, sendi svo til hli\u00f0ar \u00e1 Frey sem drap botlann \u00f3a\u00f0finnanlega og skora\u00f0i svo vandr\u00e6\u00f0alaust. Fram 3:1 UBK 1&#8230; Eftir marki\u00f0 var broti\u00f0 fruntalega \u00e1 Halla \u00e1n \u00feess a\u00f0 d\u00f3mari leiksins hirti um a\u00f0 gera nokkrar r\u00e1\u00f0stafanir.<\/p><p>Eftir hl\u00e9 h\u00e9ldu yfirbur\u00f0irnir \u00e1fram. Jakob var strauja\u00f0ur \u00ed v\u00edtateig gestanna \u00e1 47. m\u00edn. en ekkert d\u00e6mt. \u00c1fram s\u00f3ttu Framarar og komust n\u00e6st \u00ed alv\u00f6ru f\u00e6ri \u00feegar aukaspyrna fr\u00e1 varnarmanni small \u00ed \u00feversl\u00e1ttni \u00e1 55. m\u00edn. og Bystr\u00f6m kom a\u00f0v\u00edfandi og negldi boltanum \u00ed neti\u00f0 \u00ed fr\u00e1kastinu, 4:1 og allt undir kontr\u00f3l!<\/p><p>Enn h\u00e9lt Fram \u00e1fram a\u00f0 s\u00e6kja (\u00ed raun hef\u00f0i \u00feessum leik \u00e1tt \u00e1 lj\u00faka 8:1 e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00e1l\u00edka). Eftir klukkut\u00edma leik minnku\u00f0u Blikar hins vegar muninn \u00ed 4:2 eftir darra\u00f0ardans \u00ed Framv\u00f6rninni. Enginn skildi hva\u00f0 hef\u00f0i \u00ed raun gerst.<\/p><p>M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar vildi R\u00f3bert f\u00e1 v\u00edti \u00e1 hinum enda vallarins, en d\u00f3marinn gaf ekkert fyrir \u00fea\u00f0. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar kom Vuk inn\u00e1 fyrir R\u00f3bert sem skila\u00f0 haf\u00f0i fr\u00e1b\u00e6ru dagsverki. Blikar minnku\u00f0u muninn eftir snarpa s\u00f3knarlotu \u00ed varnarl\u00ednu Fram sem endar \u00e1 marki eftir 60 m\u00edn.<\/p><p>Eftir t\u00edu m\u00edn\u00fatna l\u00e1dey\u00f0u d\u00e6mdi d\u00f3mari leiksins v\u00edtaspyrnu \u00e1 Viktor markv\u00f6r\u00f0 fyrir litlar sakir. Gestirnir skoru\u00f0u, 4:3.\u00a0 Fram vildi v\u00edti eftir \u00fea\u00f0 sem virtist auglj\u00f3st brot \u00e1 Frey \u00e1 75. m\u00edn. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00f3ru Jakob og Freyr af velli fyrir Badda og M\u00e1. \u00deegar loks var flauta\u00f0 til leiksloka brutust \u00fat innileg fa\u00f0ml\u00f6g \u00fear sem okkar menn f\u00f6gnu\u00f0u g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri. Fram er eftir umfer\u00f0ina komi\u00f0 \u00e1 g\u00f3\u00f0an sta\u00f0 \u00ed topp-3 slagsm\u00e1lunum en anna\u00f0 ver\u00f0ur l\u00e1ti\u00f0 sl\u00e6da!<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<br \/><br \/>Kristinn Steinn fanga\u00f0i augnablikin sj\u00e1 h\u00e9r: <a href=\"https:\/\/www.flickr.com\/photos\/99255499@N07\/collections\/72157722567995480\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">https:\/\/www.flickr.com\/photos\/99255499@N07\/collections\/72157722567995480\/<\/a><\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>A\u00f0 vinna f\u00f3tboltaleiki er g\u00f3\u00f0 skemmtun. Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar hefur enga t\u00f6lu \u00e1 \u00f6llum \u00feeim tapleikjum sem hann hefur skrifa\u00f0 um fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 T\u00f3ti \u00ed\u00fer\u00f3ttafulltr\u00fai plata\u00f0i hann fyrst til a\u00f0 [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":48104,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-48103","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2026\/05\/Kenny-gegn-UBK.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48103","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=48103"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48103\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":48111,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48103\/revisions\/48111"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/48104"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=48103"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=48103"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=48103"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}