{"id":48237,"date":"2026-06-30T08:02:50","date_gmt":"2026-06-30T08:02:50","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=48237"},"modified":"2026-06-30T17:31:11","modified_gmt":"2026-06-30T17:31:11","slug":"strakar-grata-ekki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2026\/06\/30\/strakar-grata-ekki\/","title":{"rendered":"Str\u00e1kar gr\u00e1ta ekki"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"48237\" class=\"elementor elementor-48237\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-771c4c0d elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"771c4c0d\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-5249e4a5\" data-id=\"5249e4a5\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-bbf97ad elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"bbf97ad\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>Einu sinni var t\u00f3nlist g\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00e1 fur\u00f0u \u00fer\u00f6ngu \u00e1rabili undir lok n\u00edunda \u00e1ratugarins og \u00ed byrjun \u00feess t\u00edunda. \u00dear \u00e1 undan var ekkert nema bl\u00f6\u00f0rupopp og \u00fear \u00e1 eftir \u00f6mur\u00f0ardisk\u00f3 e\u00f0a rapp. En \u00ed \u00f6rf\u00e1 \u00e1r var samin almennileg t\u00f3nlist, \u00fear sem her\u00f3\u00ednsj\u00faklingar sungu um t\u00e1ningsangist. \u00deessar hlj\u00f3msveitir bj\u00f6rgu\u00f0u ge\u00f0heilsu okkar X-kynsl\u00f3\u00f0arbarnanna, en s\u00f3lundu\u00f0u \u00f6llu s\u00ednu f\u00e9 \u00ed augnskugga og h\u00f6r\u00f0 f\u00edkniefni. Enginn var me\u00f0 vi\u00f0b\u00f3tarl\u00edfeyrissparna\u00f0.<\/p><p>Fyrir viki\u00f0 er n\u00fa komi\u00f0 a\u00f0 skuldad\u00f6gum. R\u00e1\u00f0setta mi\u00f0aldraf\u00f3lkinu, sem er l\u00f6ngu komi\u00f0 \u00ed golfi\u00f0 og \u00f6ldungablaki\u00f0 og hefur komi\u00f0 \u00e1r sinni vel fyrir bor\u00f0, ber n\u00fa si\u00f0fer\u00f0isleg skylda til a\u00f0 framfleyta rokkgo\u00f0um \u00e6sku\u00e1ranna \u00ed ellinni. \u00dea\u00f0 gerum vi\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kaupa fokd\u00fdra t\u00f3nleikami\u00f0a \u00e1 g\u00f6mlu br\u00fdnin \u2013 helst \u00ed \u00fatlandinu til a\u00f0 fokka upp v\u00f6ruskiptaj\u00f6fnu\u00f0inum \u00ed lei\u00f0inni. Skjaldsveinninn Valur Nor\u00f0ri er ekki ma\u00f0ur sem bregst skyldum s\u00ednum. \u00deess vegna var hann \u00e1 v\u00edsum sta\u00f0 \u00feegar Framarar h\u00e9ldu \u00e1 Skagann \u00ed kv\u00f6ld&#8230; \u00e1 Cure-t\u00f3nleikum \u00ed Dyflinni.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn, Rabbi trymbill og Kristj\u00e1n hn\u00edfsdalstrymbil (\u00fea\u00f0 hef\u00f0i gert mj\u00f6g miki\u00f0 fyrir fl\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feessum leiksk\u00fdrslum ef annar \u00feeirra hef\u00f0i t.d. spila\u00f0 \u00e1 bassa) h\u00e9ldu hins vegar saman upp \u00e1 Skipaskaga, \u00ed litlu rau\u00f0u rafmagnsd\u00f3s Fr\u00e9ttaritarans. Rennt var \u00ed hla\u00f0 fimmt\u00e1n m\u00edn\u00fatum fyrir leik, sem m\u00e1tti ekki seinna vera \u00fear sem mi\u00f0as\u00f6luforriti\u00f0 Stubbur var \u00ed t\u00f3mu rugli. M\u00f6gulega borga\u00f0i Fr\u00e9ttaritarinn fj\u00f3rfalt fyrir mi\u00f0ann \u2013 en \u00fea\u00f0 hef\u00f0i \u00fe\u00f3 samt veri\u00f0 hverrar kr\u00f3nu vir\u00f0i!<\/p><p>Li\u00f0suppstillingin l\u00e1 fyrir \u00ed Kollafir\u00f0inum. Halli var \u00ed banni og Kyle enn\u00fe\u00e1 meiddur. Viktor st\u00f3\u00f0 \u00fev\u00ed \u00ed markinu a\u00f0 venju, Sigurj\u00f3n, \u00deorri og Kennie \u00ed \u00f6ftustu varnarl\u00ednu. M\u00e1r og Israel \u00ed bakv\u00f6r\u00f0um, \u00c6gir Jarl aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Frey og Fred fyrir framan sig. Atli og R\u00f3bert frammi. Varamannabekkurinn \u00f3gnarsterkur.<\/p><p>Framarar m\u00e6ttu vel og alltof langt m\u00e1l v\u00e6ri a\u00f0 neimdroppa mannskapinn. Ve\u00f0ri\u00f0 var hi\u00f0 besta og grasv\u00f6llurinn leit fr\u00e1b\u00e6rlega \u00fat. \u00dea\u00f0 er alltaf stemning \u00feegar \u00cdA og Fram m\u00e6tast \u00ed R\u00edkhar\u00f0s J\u00f3nssonar-slagnum.<\/p><p>Hafi menn haft \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 skellurinn \u00ed s\u00ed\u00f0asta leik s\u00e6ti \u00ed okkar m\u00f6nnum, ruku \u00fe\u00e6r flj\u00f3tt \u00fat \u00ed ve\u00f0ur og vind. Framarar komu miklu sterkari til leiks og eftir fyrsta stundarfj\u00f3r\u00f0unginn f\u00f3r Fr\u00e9ttaritarinn a\u00f0 velta \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort nokkur ritfangaverslun v\u00e6ri \u00e1 Skaganum \u2013 minnisb\u00f3kinn fylltist hratt.<\/p><p>Strax \u00e1 \u00e1ttundu m\u00edn\u00fatu \u00e1tti Freyr gl\u00e6silega sendingu \u00fat \u00e1 kant \u00e1 M\u00e1sa sem sendi fyrir marki\u00f0 \u00e1 Fred sem \u00e1tti skalla \u00ed horni\u00f0 ni\u00f0ri, en markv\u00f6r\u00f0ur \u00cdA var\u00f0i vel. \u00dar hornspyrnunni \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1tti Sigurj\u00f3n langan skalla sem virtist \u00e6tla a\u00f0 sv\u00edfa l\u00f6turh\u00e6gt \u00ed fj\u00e6rhorni\u00f0 en Kennie var d\u00e6mdur brotlegur \u00e1 markver\u00f0inum fyrir litlar sakir. Enn lei\u00f0 m\u00edn\u00fata uns skot fr\u00e1 R\u00f3berti var vari\u00f0 framhj\u00e1 og eftir hornspyrnuna virtist Kennie f\u00e1 fr\u00edan skalla framhj\u00e1 o.s.frv., o.s.frv&#8230;<\/p><p>R\u00f3bert og Atli virtust geta splundra\u00f0 Skagav\u00f6rninni a\u00f0 vild \u00ed \u00feessum fyrsta leikhluta og \u00fea\u00f0 var einmitt eftir gl\u00e6silegan samleik \u00feeirra tveggja \u2013 og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega fr\u00e1b\u00e6rlega<\/p><p>netta afgrei\u00f0slu Atla sem Framarar t\u00f3ku forystuna, 0:1 \u00e1 20. m\u00edn\u00fatu. Fer\u00f0alangarnir \u00fer\u00edr stukku \u00e1 f\u00e6tur og f\u00f6gnu\u00f0u tryllingslega, en uppg\u00f6tvu\u00f0u um lei\u00f0 a\u00f0 markafleygurinn g\u00f3\u00f0i v\u00e6ri v\u00e6ntanlega \u00ed Dyflinni, eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 nota\u00f0ur til a\u00f0 fagna hverri v\u00edsun \u00ed kv\u00ed\u00f0a og \u00f6ryggisleysi. Hn\u00edfsdalstrymbillinn luma\u00f0i \u00e1 \u00f6\u00f0ru og n\u00e6stum eins g\u00f3\u00f0u: pakka af Fisherman\u00b4s Friend me\u00f0 kl\u00f3setthreinsis- og sk\u00f3garberjabrag\u00f0i sem l\u00e1tinn var gegna sama hlutverki.<\/p><p>Salm\u00edakstafla sj\u00f3mannsvinarins var varla farin a\u00f0 br\u00e1\u00f0na \u00e1 tungunni \u00feegar komi\u00f0 var a\u00f0 skammti n\u00famer tv\u00f6. Tveimur m\u00edn\u00fatum eftir mark nr. eitt kom mark nr. tv\u00f6. L\u00f6ng sending \u00ed gegnum \u00cdA-v\u00f6rnina virtist \u00e6tla a\u00f0 fara aftur fyrir endam\u00f6rk. R\u00f3bert var \u00e1 \u00f6\u00f0ru m\u00e1li og hlj\u00f3p eins og Daley Thompson (sl\u00e1i\u00f0 honum upp \u00e1 Wikipediu) \u00e1 eftir boltanum. Skagamarkv\u00f6r\u00f0urinn hika\u00f0i a\u00f0eins of lengi og renndi s\u00e9r svo \u00fat \u00e1 m\u00f3ti og felldi R\u00f3bert, sem l\u00edklega var b\u00fainn a\u00f0 missa boltann of langt fr\u00e1 s\u00e9r. V\u00edtaspyrna. Atli f\u00f3r \u00e1 punktinn og gladdi hi\u00f0 gamla hjarta Fr\u00e9ttaritarans me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sleppa \u00f6llum st\u00e6lum \u2013 heldur sparka bara \u00fe\u00e9ttingsfast. \u00dea\u00f0 er alltaf best. 0:2 og yfirbur\u00f0ir okkar algj\u00f6rir.<\/p><p>\u00c1\u00f0ur en h\u00e1lft\u00edmi var \u00e1 klukkunni h\u00f6f\u00f0u \u00feeir Atli og R\u00f3bert b\u00e1\u00f0ir geta\u00f0 b\u00e6tt vi\u00f0 \u00feri\u00f0ja markinu. \u00c1 F\u00f3tbolta-punktur-net voru \u00feeir kump\u00e1nar valdir menn leiksins og byggt \u00e1 fyrri h\u00e1lfleiknum einum og s\u00e9r liggur \u00fea\u00f0 nokku\u00f0 n\u00e6rri lagi. Freyr var \u00fe\u00f3 ekki s\u00ed\u00f0ur \u00f6flugur og hef\u00f0i h\u00e6glega geta\u00f0 skora\u00f0 \u00feegar hann vann boltann af aftasta Skagamanni vel inni \u00e1 vallarhelmingi Fram og t\u00f3k eitt af s\u00ednum fr\u00e6gu hlaupum. Undir lok h\u00e1lfleiksins t\u00f3ku Framarar a\u00f0 bakka l\u00edtillega og fyrstu Skagaf\u00e6rin litu dagsins lj\u00f3s, en heimamenn sk\u00f6pu\u00f0u sjaldnast h\u00e6ttu nema me\u00f0 krossum fyrir marki\u00f0 \u2013 en \u00fe\u00e1 gat l\u00edka allt veri\u00f0 \u00ed vo\u00f0a.<\/p><p>Flauta\u00f0 var til leikhl\u00e9s og lei\u00f0in l\u00e1 \u00ed myrkrakompu Skagamanna sem gengur undir nafninu Akraborgin. \u00dear var bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 hei\u00f0arlega f\u00f3tboltaborgara \u2013 au\u00f0vita\u00f0 enga Framborgara, en alveg \u00feokkalega engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur.<\/p><p>Fram hefur veri\u00f0 margt betur gefi\u00f0 \u00ed \u00e1r en a\u00f0 halda hreinu \u00ed leikjum s\u00ednum. \u00dea\u00f0 er af sem \u00e1\u00f0ur var \u00feegar Framli\u00f0 R\u00fanars Kristinssonar var me\u00f0 svarta belti\u00f0 \u00ed a\u00f0 drepa ni\u00f0ur leiki og verja forystu. Akranes \u00ed lok j\u00fan\u00ed var alls ekki sl\u00e6mur t\u00edmi til a\u00f0 rifja upp gamla takta og leita \u00ed g\u00f6mlu gildin.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur var \u00f3l\u00edkt t\u00ed\u00f0indaminni en s\u00e1 fyrri. \u00dea\u00f0 fyrsta sem rata\u00f0i \u00ed minnisb\u00f3kina var skemmtilegur flugskalli Viktors markvar\u00f0ar lengst \u00fati \u00e1 velli \u00e1 49. m\u00edn\u00fatu. Minna skemmtilegt var fimm m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feegar d\u00f3mari leiksins l\u00e9t \u00fea\u00f0 \u00f3\u00e1tali\u00f0 a\u00f0 framherji Skagamanna sparka\u00f0i \u00ed hausinn \u00e1 Viktori. Leikur sem haf\u00f0i veri\u00f0 frekar pr\u00fa\u00f0mannlega leikinn var\u00f0 hratt gr\u00f3fari og pirringsstigi\u00f0 h\u00e6kka\u00f0i, ekki hva\u00f0 s\u00edst vegna misr\u00e6mis \u00ed d\u00f3mum.<\/p><p>Eftir darra\u00f0ardans \u00ed Skagav\u00f6rninni \u00e1 56. m\u00edn\u00fatu s\u00f3pa\u00f0i M\u00e1r boltanum yfir \u00far g\u00f3\u00f0u f\u00e6ri. M\u00e1si var virkilega g\u00f3\u00f0ur \u00ed kv\u00f6ld og ver\u00f0skuldar hr\u00f3s \u2013 \u00e1samt Israel sem \u00e1tti einn sinn besta leik \u00ed Framtreyjunni og leysti hornspyrnurnar afar vel \u00ed fjarveru Halla. Fyrsta skiptingin kom svo \u00e1 57. m\u00edn\u00fatu \u00feegar Jakob kom inn\u00e1 fyrir Atla.<\/p><p>Upp \u00far mi\u00f0jum seinni h\u00e1lfleik var leikurinn farinn a\u00f0 sn\u00faast meira og meira upp \u00ed slagsm\u00e1l og stympingar. Fram f\u00e9kk f\u00e1ein h\u00e1lff\u00e6ri \u00e1 me\u00f0an Skaginn var meira me\u00f0 boltann en skapa\u00f0i s\u00e1ral\u00edti\u00f0. \u00deegar kort\u00e9r var eftir f\u00f3ru svo \u00feeir R\u00f3bert og Fred af velli en Vuk og Baddi komu inn\u00e1 \u00ed sta\u00f0inn. Litlu m\u00e1tti muna a\u00f0 Vuk skora\u00f0i \u00far fyrstu snertingu en skalli hans f\u00f3r framhj\u00e1.<\/p><p>Freyr f\u00e9kk a\u00f0 lokum hv\u00edldina \u00e1 86. m\u00edn\u00fatu \u00feegar Tibbling leysti hann af h\u00f3lmi. Gott hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 hann fyrr inn\u00e1, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 fyrst f\u00f3ru Framarar a\u00f0 \u00feora a\u00f0 halda boltanum lengur en \u00ed \u00f6rf\u00e1ar snertingar \u2013 en au\u00f0vita\u00f0 skilur ma\u00f0ur \u00fea\u00f0 vel a\u00f0 \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 vilji ekki taka neina \u00e1h\u00e6ttu me\u00f0 s\u00e6nsku \u00fej\u00f3\u00f0argersemina. \u00cd bl\u00e1lokin komust Skagamenn \u00ed tv\u00f6 h\u00f6rkuf\u00e6ri en Viktor k\u00f3r\u00f3na\u00f0i g\u00f3\u00f0an leik sinn me\u00f0 f\u00ednum v\u00f6rslum.<\/p><p>Fr\u00e1b\u00e6r sigur \u00e1 erfi\u00f0um \u00fativelli gegn li\u00f0i sem \u00e1 vafal\u00edti\u00f0 eftir a\u00f0 m\u00e6ta okkur \u00ed efri hluta \u00farslitakeppninnar. Stigin d\u00fdrm\u00e6t og hreina marki\u00f0 gott. Ma\u00f0ur leiksins a\u00f0 mati Fr\u00e9ttaritarans var \u00fe\u00f3 \u00c6gir Jarl sem var gr\u00ed\u00f0arlega \u00f6flugur \u00e1 mi\u00f0junni. Sj\u00e1umst n\u00e6st \u00ed Keflav\u00edk eftir vikut\u00edma.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einu sinni var t\u00f3nlist g\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00e1 fur\u00f0u \u00fer\u00f6ngu \u00e1rabili undir lok n\u00edunda \u00e1ratugarins og \u00ed byrjun \u00feess t\u00edunda. \u00dear \u00e1 undan var ekkert nema bl\u00f6\u00f0rupopp og \u00fear \u00e1 [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":48238,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-48237","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2026\/06\/Atli-gegn-IA-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48237","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=48237"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48237\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":48248,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48237\/revisions\/48248"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/48238"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=48237"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=48237"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=48237"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}