{"id":48294,"date":"2026-07-12T23:25:28","date_gmt":"2026-07-12T23:25:28","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=48294"},"modified":"2026-07-12T23:25:51","modified_gmt":"2026-07-12T23:25:51","slug":"og-raudkal-med","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/fram.is\/is\/2026\/07\/12\/og-raudkal-med\/","title":{"rendered":"Og rau\u00f0k\u00e1l me\u00f0&#8230;"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"48294\" class=\"elementor elementor-48294\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-3dfd3584 elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"3dfd3584\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-7e74233d\" data-id=\"7e74233d\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-1f6baa5c elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"1f6baa5c\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>Eins og fram hefur komi\u00f0 \u00ed leiksk\u00fdrslum fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar gengur lei\u00f0 18 n\u00e1nast beint fr\u00e1 heimili hans \u00ed Hl\u00ed\u00f0unum a\u00f0 Lambhagavellinum \u00ed Dal draumanna. \u00deessi sta\u00f0reynd hefur minnka\u00f0 kolefnisf\u00f3tspor fr\u00e9ttaritarans umtalsvert \u00e1 li\u00f0num \u00e1rum og \u00fdtt undir bj\u00f3rdrykkju \u00e1 leikjum. Loftslagsmarkmi\u00f0 1 : lifrin \u00ed fr\u00e9ttaritaranum 0.<\/p><p>\u00cd dag lag\u00f0i fr\u00e9ttaritarinn snemma af sta\u00f0 \u00ed \u00dalfars\u00e1rdalinn \u00e1 risast\u00f3rum Volvo. Skjaldsveinninn sl\u00f3st \u00ed h\u00f3pinn \u00e1 Grens\u00e1sveginum. N\u00fa v\u00e6ri miki\u00f0 \u00ed h\u00fafi: Fram yr\u00f0i a\u00f0 s\u00e6kja sigur gegn gestunum fr\u00e1 Akureyri \u00ed slagnum um anna\u00f0 s\u00e6ti\u00f0 \u00e1 \u00cdslandsm\u00f3tinu. \u00cd fyrri leik li\u00f0anna nyr\u00f0ra h\u00f6f\u00f0u \u00de\u00f3rsarar varist eins og andsetnir og uppskori\u00f0 sigur \u00fevert \u00e1 \u00f6ll r\u00f6k og skynsemi. \u00dea\u00f0 m\u00e6tti ekki endurtaka sig.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn og\u00a0 Valur Nor\u00f0ri m\u00e6ttu gla\u00f0v\u00e6rir \u00ed f\u00ednumannabo\u00f0i\u00f0 \u00feegar um 40 m\u00edn\u00fatur voru \u00ed leik. \u00c1 bo\u00f0st\u00f3lum voru SS-pylsur so\u00f0nar \u00ed potti! Og \u00fear sem m\u00f3therjarnir voru Akureyringar var bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 fj\u00f6lskr\u00fa\u00f0ugra me\u00f0l\u00e6ti en t\u00ed\u00f0kast sunnan hei\u00f0a: s\u00farar g\u00farkur, kart\u00f6flusalat og rau\u00f0k\u00e1l. Menningarn\u00e1m e\u00f0a ekki \u2013 fr\u00e9ttaritarinn t\u00f3k vel til matar s\u00edns og s\u00e1 ekki eftir \u00fev\u00ed fyrr en vi\u00f0 fyrsta ropa!<\/p><p>Byrjunarli\u00f0in h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 kynnt \u00e1 netinu og \u00fear bar eitt og anna\u00f0 til t\u00ed\u00f0inda. Viktor st\u00f3\u00f0 milli stanganna og fyrir framan hann voru Kennie, Sigurj\u00f3n og \u00deorri. \u00cd bakv\u00f6r\u00f0unum voru n\u00fa Halli og Krist\u00f3fer. \u00c6gir aftastur \u00e1 mi\u00f0junni me\u00f0 Frey fyrir framan sig sem og Tibbling sem loksins kom aftur inn \u00ed byrjunarli\u00f0i\u00f0. Fred og Vuk frammi. Atli er enn meiddur og utan li\u00f0s og \u00feeir M\u00e1r og Jakob b\u00e1\u00f0ir \u00e1 bekknum.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn og Skjaldsveinninn f\u00e6r\u00f0u sig ni\u00f0ur \u00ed st\u00fakuna og hittu \u00fear afm\u00e6lisbarni\u00f0 Rabba trymbil. Hn\u00edfsdalstrymbillinn haf\u00f0i teki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 berja h\u00fa\u00f0ir og sat innan um Geiramenn nokkrum r\u00f6\u00f0um framar. \u00dea\u00f0 var vindn\u00e6\u00f0ingur sem aldrei \u00feessu vant sneri inn \u00ed st\u00fakuna. Fram h\u00f3f leik gegn b\u00fdsna sterkum vindi.<\/p><p>Leikurinn h\u00f3fst og Framarar byrju\u00f0u nokku\u00f0 l\u00edflega. Vuk og Fred l\u00e9ku s\u00edn \u00e1 milli og skutu svo naumlega framhj\u00e1 strax \u00e1 fj\u00f3r\u00f0u m\u00edn\u00fatu og strax fj\u00f3rum m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar s\u00f3pa\u00f0i Freyr boltanum yfir marki\u00f0 eftir f\u00ednan undirb\u00faning fr\u00e1 Fred&#8230; Eftir \u00feessar fyrstu efnilegu m\u00edn\u00fatur dr\u00f3gu Framarar sig aftar \u00e1 v\u00f6llinn og gestirnir fengu f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 koma s\u00e9r inn \u00ed leikinn. \u00derj\u00fa h\u00e1lff\u00e6ri \u00de\u00f3rs \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma litu dagsins lj\u00f3s og \u00ed einu \u00feeirra skoppa\u00f0i boltinn on\u00e1 sl\u00e1 Frammarksins eftir \u00fea\u00f0 sem virtist sakleysisleg fyrirgj\u00f6f.<\/p><p>Var sama k\u00e6ruleysi\u00f0 og \u00ed Keflav\u00edk \u00ed s\u00ed\u00f0asta leik a\u00f0 taka v\u00f6ldin hj\u00e1 Fr\u00f6murum? Stu\u00f0ningsm\u00f6nnunum \u00e1 p\u00f6llunum st\u00f3\u00f0 ekki \u00e1 sama. En \u00fe\u00e1 kom Hornarfjar\u00f0arm\u00e1ninn til bjargar. \u00deegar fyrri h\u00e1lfleikur var n\u00e1kv\u00e6mlega h\u00e1lfna\u00f0ur n\u00e1\u00f0i Freyr, sem haf\u00f0i veri\u00f0 langkvikastur okkar manna, boltanum af einum \u00de\u00f3rsvarnarmanninum \u00ed \u00f6ftustu v\u00edgl\u00ednu og skora\u00f0i au\u00f0veldlega, 1:0. Vi\u00f0 marki\u00f0 hrundi s\u00fa litla m\u00f3tspyrna sem gestirnir h\u00f6f\u00f0u s\u00fdnt fram a\u00f0 \u00fev\u00ed.<\/p><p>Tveimur m\u00edn\u00fatum eftir marki\u00f0 var stugga\u00f0 vi\u00f0 Vuk, sem vildi v\u00edti, en samstu\u00f0i\u00f0 var hvorki miki\u00f0 n\u00e9 merkilegt. R\u00e9tt \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 prj\u00f3nu\u00f0u \u00feeir Fred og Freyr sig \u00ed gegnum Akureyrarv\u00f6rnina en fr\u00e1b\u00e6r \u00de\u00f3rsmarkv\u00f6r\u00f0urinn var\u00f0i vel fr\u00e1 Frey. Eftir hornspyrnuna \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00feruma\u00f0i Krist\u00f3fer r\u00e9tt framhj\u00e1.<\/p><p>N\u00e6stu m\u00edn\u00fatur buldu s\u00f3knir Framara \u00e1 \u00de\u00f3rsv\u00f6rninni \u00fear sem \u00feeir Krist\u00f3fer og \u00c6gir komust b\u00e1\u00f0ir \u00ed g\u00f3\u00f0 f\u00e6ri. Fred \u00feuma\u00f0i \u00ed st\u00f6ngina \u00e1 36. m\u00edn\u00fatu og boltinn hr\u00f6kk af baki markvar\u00f0arins og \u00ed horn. Krist\u00f3fer t\u00f3k hornspyrnuna og sendi beint \u00e1 kollinn \u00e1 \u00c6gi sem st\u00f3\u00f0 einn og \u00f3valda\u00f0ur og skora\u00f0i 2:0. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar fiska\u00f0i Tibbling aukaspyrnu \u00e1 h\u00e6ttulegum sta\u00f0 sem Krist\u00f3fer t\u00f3k. \u00derumuskot hans var slegi\u00f0 fr\u00e1 marki \u00fear sem Freyr kom a\u00f0v\u00edfandi en skaut r\u00e9tt yfir marki\u00f0. M\u00edn\u00fatu s\u00ed\u00f0ar var Halli n\u00e1nast b\u00fainn a\u00f0 prj\u00f3na sig \u00ed gegnum \u00fe\u00e9tta v\u00f6rn gestanna en var st\u00f6\u00f0va\u00f0ur \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu stundu.<\/p><p>Fr\u00e9ttaritarinn, Rabbi og skjaldsveinninn voru farnir a\u00f0 tala dr\u00fdgindalega um markamet og rifja upp 8:0 sigurinn \u00e1 \u00de\u00f3r \u00ed B-deildinni 1996 \u00feegar gestirnir minnku\u00f0u muninn \u00fevert gegn gangi leiksins n\u00e1nast \u00ed lokaspyrnu fyrri h\u00e1lfleiks eftir k\u00e6ruleysislegt \u00fathlaup Viktors. Svekkjandi mark en Framarar hafa sterk bein og h\u00e9ldu saman \u00ed Bar8una til a\u00f0 hla\u00f0a batter\u00edin.<\/p><p>Yfirbur\u00f0ir Framara h\u00e9ldu \u00e1fram \u00ed seinni h\u00e1lfleik. \u00c6gir f\u00e9kk fyrsta dau\u00f0af\u00e6ri\u00f0 eftir fj\u00f6gurra m\u00edn\u00fatna leik en n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 teygja sig \u00ed boltann \u00ed lokin. \u00c1 54. m\u00edn\u00fatu l\u00e9ku \u00feeir Vuk og Krist\u00f3fer sig \u00ed gegnum v\u00f6rn \u00de\u00f3rs, sendi fyrir marki\u00f0 og Halli kom a\u00f0v\u00edfandi \u00e1 fj\u00e6r og skora\u00f0i 3:1. \u00deremur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar minntu gestirnir \u00fe\u00f3 \u00e1 a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru ekki dau\u00f0ir \u00far \u00f6llum \u00e6\u00f0um me\u00f0 \u00f3v\u00e6ntu stangarskoti upp\u00far engu. \u00deegar h\u00e1lft\u00edmi var til leiksloka veittu Framarar r\u00f6th\u00f6ggi\u00f0 \u00feegar Halli skora\u00f0i sitt anna\u00f0 mark me\u00f0 skalla eftir g\u00f3\u00f0an undirb\u00faning fr\u00e1 Fred.<\/p><p>Um \u00fea\u00f0 leyti sem bl\u00e1si\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 til vatnsp\u00e1su \u00e1 leikjum HM ger\u00f0u R\u00fanar og Helgi fyrstu skiptingarnar \u00fear sem R\u00f3bert og Bystr\u00f6m komu inn\u00e1 fyrir Fred og Vuk. Svarfd\u00e6lingurinn okkar var ekki lengi a\u00f0 n\u00e1 sto\u00f0sendingu eftir a\u00f0 hafa lagt boltann fyrir \u00e1 Krist\u00f3fer sem sem skora\u00f0i 5:1 \u00e1 71. m\u00edn\u00fatu. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar var \u00c6gir Jarl tekinn af velli fyrir Badda. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar ger\u00f0i \u00fej\u00e1lfarateymi\u00f0 lokabreytinguna \u00feegar \u00feeir M\u00e1r og Israel komu inn\u00e1 fyrir Tibbling og Krist\u00f3fer. \u00c1n \u00feess a\u00f0 ma\u00f0ur vilji gagnr\u00fdna yfirstj\u00f3rnina eftir st\u00f3rsigur spyr ma\u00f0ur sig samt hvort st\u00f3rsigur \u00e1 heimavelli gegn botnli\u00f0i hef\u00f0i ekki gefi\u00f0 tilefni til a\u00f0 bl\u00f3\u00f0ga eitthva\u00f0 af n\u00fdli\u00f0unum okkar \u00e1 bekknum?<\/p><p>Jakob Bystr\u00f6m kl\u00fa\u00f0ra\u00f0i besta f\u00e6ri \u00ed heimi \u00e1 70 m\u00edn\u00fatu, einn gegn markmanni eftir st\u00f3rkostlegan undirb\u00faning R\u00f3berts og sama k\u00e6ruleysi virtist r\u00e1\u00f0andi tveimur m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar \u00feegar \u00feeir Freyr og R\u00f3bert komust \u00ed dau\u00f0af\u00e6ri sem rann \u00fat \u00ed sandinn. Fimm m\u00edn\u00fatum fyrir leikslok n\u00e1\u00f0u \u00feeir Fred, M\u00e1r og Bystr\u00f6m \u00fe\u00f3 a\u00f0 f\u00edfla \u00de\u00f3rsv\u00f6rnina \u00fear sem s\u00e1 s\u00ed\u00f0astnefndi skora\u00f0i 6:1 og Framarar unnu sinn st\u00e6rsta deildarsigur fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 unnum Keflav\u00edk 5:0 sumari\u00f0 2009.<\/p><p>Fr\u00e1b\u00e6r frammista\u00f0a allra \u00ed li\u00f0inu. Freyr var afbrag\u00f0sg\u00f3\u00f0ur. Sigurj\u00f3n verulega \u00f6flugur \u00ed v\u00f6rninni og Halli virkilega sterkur. Ma\u00f0ur leiksins a\u00f0 mati fr\u00e9ttaritarans var \u00fe\u00f3 Krist\u00f3fer sem l\u00e9k \u00ed einhverri \u00f3skilgreindri st\u00f6\u00f0u \u00ed kv\u00f6ld og var \u00fati um allan v\u00f6ll. N\u00e6sti leikur er austurb\u00e6jarslagur gegn Valsm\u00f6nnum. \u00deanga\u00f0 m\u00e6ta allir g\u00f3\u00f0ur menn.<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eins og fram hefur komi\u00f0 \u00ed leiksk\u00fdrslum fr\u00e9ttaritara Frams\u00ed\u00f0unnar gengur lei\u00f0 18 n\u00e1nast beint fr\u00e1 heimili hans \u00ed Hl\u00ed\u00f0unum a\u00f0 Lambhagavellinum \u00ed Dal draumanna. \u00deessi sta\u00f0reynd hefur minnka\u00f0 kolefnisf\u00f3tspor fr\u00e9ttaritarans [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":48295,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[9,11],"tags":[],"class_list":["post-48294","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-fotbolti","category-mflkarla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/fram.is\/wp-content\/uploads\/2026\/07\/Kristofer-.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48294","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=48294"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48294\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":48299,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/48294\/revisions\/48299"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/48295"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=48294"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=48294"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=48294"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}