Fram heldur sitt árlega herrakvöld laugardaginn 8. október í félagsheimili Fram. Þetta er kvöld sem enginn vill missa af. Frábær skemmtun og ljúffengur matur.
Guðmundur B. Ólafsson mun stýra veislunni af sinni alkunnu snilld. Gestir fá einnig að njóta óborganlegs húmors frá einum fremsta skemmtikrafti landsins, Ara Eldjárn. Maturinn verður í höndum Lauga-ás. Happdrætti og hið vinsæla uppboð, því er von skemmtilegu kvöldi.
Komdu og njóttu frábærs kvölds með góðum félögum!
Það er takmarkaður miðafjöldi, svo tryggðu þér miða í tíma.
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00
Þeir sem vilja panta heil borð (10 mannaborð) eru beðnir um að hafa beint samband á toggi@fram.is