fbpx
Vug gegn Keflavík

Hannyrðir

Þegar fréttaritari Framsíðunnar var ungur drengur í grunnskóla fyrir hundrað árum síðan, fór hannyrðakennslan fram í einni björtustu og fallegustu skólastofunni á suðurgafli skólabyggingarinnar. Í almennu tali voru kennslustundir þessar aldrei kallaðar annað en prjón. Þær gengu út á að kenna gríslingunum að prjóna undir stjórn kennslukonu sem átti líklega við áfengisvandamál að stríða og var jafnvel ekki viðræðuhæf heilu og hálfu kennslustundirnar. Ekki að það hafi skipt miklu máli. Hlutverk hennar var í raun bundið við að líta yfir prjónlesið sem okkur hafði verið gert að klára heima við þá vikuna – og rekja upp af fullkomnum tilfinningalegum kulda það sem ekki var talið nægilega vel gert, fyrir framan okkur hin. Þeir heppnu náðu að klára trefil. Samviskusömu stelpurnar náðu að prjóna kött.

Hver er tenging þessarar sögu við leik Fram og Keflavíkur á Salatinu í Dal draumanna? Jú, leikmenn fram sýndu á löngum köflum mikla færni í að prjóna sig í gegnum Keflavíkurvörnina, þótt mjög misjafnt væri hverju það skilaði. Of slöpp tenging? Þetta er samt það besta sem er í boði á föstudagskvöldi.

Fréttaritarinn tók leið 18 úr Hlíðunum og þurfti að leggja snemma af stað enda leiktíminn furðusnemma, sem bitnaði þó ekki á mætingu. 800 manns, þótt gestirnir væru fáir. Greinilegt að fjölskyldufólkið í hverfinu kann að meta þennan tíma, hvað svo sem okkur gömlu hundunum kann að finnast. Fyrstu gestirnir voru mættir í fínumannasamkvæmið þar sem boðið var upp á lasagne og léttar veitingar. Fréttaritarinn var hálf umkomulaus. Rabbi trymbill var upptekinn og skjaldsveinninn Valur Norðri í einhverju dagpeningaharki í útlandinu. Það var þó einvalalið samankomið í útsýnisstúkunni. Rúnar þjálfari mætti og staðfesti þar sem fram hafði komið á netinu: að byrjunarliðið yrði það sama og síðast. Viktor í marki. Kyle, Sigurjón og Þorri miðverðir. Halli og Kennie í bakvörðum (nema allir vita auðvitað að Kennie er ekki í neinni fastri stöðu í liðinu heldur er hann náttúruafl sem hleypur þangað sem hans er helst þörf hverju sinni). Freyr, Simon og Israel á miðjunni. Vuk og Atli frammi. Góðu fréttirnar voru að Fred og Ægir Jarl voru komnir á bekkinn og líklegir til að koma við sögu.

Þegar líða tók að leik rölti fréttaritarinn niður í stúku. Þar sem hann var búinn að hengja sig á þá félagana nafna sinn og Þorbjörn Atla (frú Ragnheiður mætti skömmu síðar) var ekki í boði að sitja. Þorbjörn Atli er of stressaður á fótboltaleikjum til að sitja kyrr, heldur stendur hann gengt miðlínunni. Það er svo sem fínt sjónarhorn, en gerir það erfiðara að taka niður punkta meðan á leik stendur. Hitastigið var fínt og enginn merkjanlegur vindur. Jón Sveinsson gat ekki stillt sig um að skjóta á fréttaritarann fyrir að vera óvenjulega dúðaður í gráu ullarpeysunni, en löng reynsla hefur kennt að viðsjárvert er að treysta aprílkvöldum á íslenskum fótboltaleikjum.

Bæði lið fengu nokkur hálffæri í leikbyrjun. Sóknarmennirnir virtust mæta betur innstilltir en varnarmennirnir. Keflavík fékk frían skalla framhjá og í tvígang skapaðist hætta eftir darraðardans í vítateig þeirra. Ísinn var hins vegar brotinn á elleftu mínútu þegar Vuk fékk langa sendingu upp kantinn, sem hann virtist ætla að missa af, þess í stað hljóp hann upp að endamörkum, tók varnarmanninn á, keyrði að marki og plantaði boltanum í fjærhorninu. Vondur varnarleikur gestanna er tær snilld frá okkar allra besta Vuk, sem virðist ætla að taka upp þráðinn frá því fyrir meiðslin á síðasta tímabili sem einn skæðasti framherji deildarinnar.

Næstu 2-3 mínúturnar mátti litlu muna að Framarar bættu við marki eða tveimur. Í öðru tilvikinu varði Keflavíkusvarkvörðurinn frábærlega skot frá Frey. Framarar gátu prjónað sig í gegnum vörn gestanna nánast að vild – en myndi hið mikilvæga annað mark líta dagsins ljós? Freyr var í stóru hlutverki á þessum tímapunkti og er hratt að endurheimta form sitt frá því í fyrra. Hann tók allar okkar hornspyrnur og þær sköpuðu undantekningarlítið hættu. Gestirnir minntu þó reglulega á sig og eftir að hafa varla komist yfir miðju  í kortér tókst Keflvíkingum að bruna upp á 37. mínútu og setja boltann í Framnetið, sem var þó dæmt af vegna tæprar rangstöðu

Flautað var til leikhlés og strikið aftur tekið í fínumannastúkuna. Stemningin var ágæt í hléi en margir Framarar þó brenndir af því að Keflavík hefur margoft á liðnum árum umhverfst í Brasiíu á móti Fram og skorað að vild. Hvað gerðist nú?

RÚV-arinn Þorkell Gunnar var mættur með kjarnafjölskylduna eftir hlé. Það hvað hann sem fjölskyldufaðir var peppaður fyrir leiktímanum gerði það að verkum að fréttaritarinn ákvað að endurskoða rant sitt um hvað þetta væri glataður tími. Öllum bar saman um að Atli Þór hefði verið frábær í framlínunni fyrir hlé en að nú væri farið að draga allverulega af honum. Hvaða bjargir hefði Rúnar á bekknum þá – einkum í ljósi leikbanns Byströms eftir réttarmorðið gegn Skagamönnum?

Bollaleggingar þessar voru snarlega rofnar á 49. mínútu þegar Fram tvölfaldaði forystuna eftir frábært samspil tveggja bestu manna leiksins. Freyr átti flotta sendingu á Vuk sem skoraði snyrtilega framhjá Keflvíkingum. Staðan 2:0 og öll gátu varpað öndinni léttar.

Framarar fengu nærri því þriðja markið á silfurfati örskömmu síðar þegar markvörður Kef negldi boltanum í Atla en frákastið skoppaði rétt framhjá markinu. Nokkrum mínútum síðar komst Atli svo aftur í dauðafæri eftir góðan undibúning frá Frey og Vuk.

Fyrsta skipting Framara var eftir klukkutíma leik. Ægir kom inná fyrir Israel og var nærri búinn að skora tveimur mínútum síðar. Stundarfjórðungi síðar fór svo framherjaparið Vuk og Atli af velli en Fred og Mingi komu inn í staðinn. Gaman var að sjá Fred í svona marksæknu hlutverki, eftir að hann varði mestöllu síðasta tímabili sem varnarsinnaður miðjumaður. Verður 2026 árið þar sem við sjáum brasilíska töframanninn aftur í fremstu víglínu?

Keflvíkingar höfðu ekki sýnt minnstu merki um að gera sig gildandi í leiknum en á 77. mínútu minnkuðu þeir muninn nánast upp úr engu og Framvörnin leit ekki sérlega vel út. Var allt á leiðinni í skrúfuna? Tækist okkur að glutra niður öruggri forystu? Þegar þrjár mínútur lifðu af venjulegum leiktíma fékk Freyr loksins hvíldina og Baddi – Bjarni Páll – leysti hann af hólmi. Í uppbótartíma átti hann eftir að klára leikinn endanlega með bylmingsskoti í þaknetið eftir snarpa atlögu frá Fred.
Fram 3 : Keflavík 1. Við erum liðið sem skorum alltaf þrjú mörk – sem ætti að skila einhverjum stigum í hús.
Næsti leikur er nyrðra, gegn Þór á miðvikudag. Fréttaritarinn er á bólakafi í kosningabaráttu og hefur ekki enn mannað sig upp í að segja kosningastjóranum að hann langi að skrópa á alla kosningafundi en keyra þess í stað til Akureyrar þar sem nákvæmlega enginn hefur kosningarétt til borgarstjórnar… en sjáum hvað setur.

Stefán Pálsson

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!