Fram, Tækniþjálfun Villa Vill og Úlfarnir (venslafélag Fram) bjóða upp á páskaþjálfun fyrir yngri flokka Fram.
Frábært tækifæri fyrir krakka í páskafríi sem hafa metnað til að bæta sinn leik í fótbolta. Unnið verður markvisst með tækni, hraða, styrk og leikskilning í góðu og uppbyggilegu æfingaumhverfi ⚽💪
Dagsetningar:
• Mánudagur 30. mars
• Þriðjudagur 31. mars
• Miðvikudagur 1. apríl
📍 Staðsetning:
Fram – gervigrasið í Úlfarsárdal
Lyftingasalur / speglasalur Fram
⏱ Æfingatímar
6. og 5. flokkur kl. 10:00 – 11:15
4. og 3. flokkur kl. 11:30 – 13:00
🎯 Áherslur í þjálfun
• Tækniæfingar
• 1 vs 1
• Sendingar
• Spil
• Hraði og snerpa
Árný styrktarþjálfari verður með styrktar- og sprengikraftsæfingar fyrir báða hópa í speglasalnum.
👥 Þjálfarar
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson (Villi)
Íþróttafræðingur frá HR, UEFA B þjálfari og með yfir 15 ára reynslu í þjálfun barna og unglinga.
Árný Andrésdóttir
Styrktarþjálfari og íþróttakennari með sérþekkingu í styrk, snerpu og sprengikrafti.
Leikmenn Úlfanna
Metnaðarfullir leikmenn sem taka þátt í þjálfuninni og miðla reynslu sinni til yngri iðkenda.
💰 Verð kr. 12.000.-
Systkinaafsláttur
• 2 systkini: kr. 20.000.-
💳 Greiðsla
Greitt með pening á staðnum eða með millifærslu á reikning Barna- og unglingaráðs Fram.
Kt. 600212-1680
Rk. 114-05-61409
Skráning er hafin – takmarkað pláss.
https://forms.gle/ZWCswVHeokkZavfL8