fbpx
Real Madrid 2026_banner

Real Madrid knattspyrnuskóli á Lambhagavelli í Úlfarsárdal 2026

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Real Madrid Foundation Clinic knattspyrnuskólann á Íslandi – einstök knattspyrnuupplifun sem byggir á aðferðafræði og gildum Real Madrid Foundation undir stjórn sérhæfðra þjálfara frá Real Madrid Foundation.                  

Real Madrid Foundation Clinic býður upp á einstakar knattspyrnubúðir fyrir börn og unglinga (5-17 ára) þar sem þjálfun, skemmtun og persónuleg þróun fara saman. Þjálfað er eftir opinberri aðferðafræði Real Madrid Foundation, með áherslu á tæknilega færni, leikskilning og jákvæð gildi eins og liðsheild, virðingu og vinnusemi.

Knattspyrnuskólinn fer fram á Lambhagavelli, dagana 17. til 21. ágúst 2026 og þátttakendur munu æfa undir leiðsögn þjálfara frá Real Madrid Foundation. 

  • Daglegar æfingar undir stjórn þjálfara frá Real Madrid Foundation
  • Markviss og uppbyggileg þjálfun samkvæmt aðferðafræði RMF
  • Faglegt og alþjóðlegt æfingabúðaumhverfi
  • Aldursskiptir hópar                    

Takmarkaður fjöldi plássa er í boði og því mælum við með að þið tryggið ykkar iðkanda pláss tímanlega.

Allt skipulag — skráning, greiðslur og samskipti við Real Madrid Foundation — eru í höndum Hill Sports Agency, opinbers samstarfsaðila Real Madrid Foundation Clinics á Íslandi.

Skráning er nú hafin á Abler!    

Nánari upplýsingar og skráning hér:  www.rmfclinicsiceland.com  

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!