Þrír fulltrúar frá FRAM í æfingaleikjum við Færeyjar!
Þeir Mikael Hrafn og Steinar Már hafa verið valdir í U16 landslið Íslands sem mætir Færeyjum í komandi verkefni.
Þá var Heiðar Berg valinn í U15 ára landslið Ísland sem mun einnig leika við Færeyjar.
Flottir strákar sem eru mjög duglegir við æfingar og keppni, verðlaunaðir með landsliðssæti. Virkilega ánægjulegt að sjá.
Til hamingju strákar!
