Framarar áttu fjóra fulltrúa á heimsmeistaramóti Hyrox sem fór fram í Stokkhólmi dagana 18. – 21. júní síðastliðinn. Um 6700 keppendur víðsvegar að úr heiminum tóku þátt. Ásdís Guðnadóttir og María Ingimundardóttir kepptu í parakeppni í aldursflokknum 60-64 ára og urðu í 3. sæti af 50 pörum. Jóna Hildur Bjarnadóttir og Margrét Björk Svavarsdóttir urðu í 5. sæti af 32 pörum í aldursflokknum 55-59 ára.
HYROX er nýtt æfingaform sem nýtur vaxandi vinsælda. Á síðasta keppnistímabili kepptu um 1,5 milljón manns á Hyrox mótum um allan heim og innan við 1% af þeim fjölda fær keppnisrétt á árlegu Heimsmeistaramóti. Hyrox æfingaformið líkist Crossfit að hluta, það er byggt á endurteknum lotum af styrktar- og úthaldsæfingum. Keppendur þurfa góða hlaupagetu og styrk þar sem unnið er á háu álagi í stöðugu flæði, yfir lengri tíma (>50 mín).