Handknattleiksdeild Fram vill þakka Reyni Þór Stefánssyni fyrir ómetanlegt framlag til félagsins undanfarin ár. Reynir, sem er aðeins 19 ára gamall, hefur verið lykilleikmaður í meistaraflokki karla og átti stóran þátt í því að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á nýliðinni leiktíð.
Reynir gengur nú til liðs við þýska úrvalsdeildarliðið MT Melsungen og verður þar til ársins 2028. Um er að ræða frábært tækifæri fyrir ungan og efnilegan leikmann. Hann hefur verið frábær fyrirmynd innan sem utan vallar og við erum sannfærð um að hann eigi eftir að standa sig vel.
Við óskum Reyni velfarnaðar í þessu nýja ævintýri og hlökkum til að fylgjast með honum blómstra í þýsku deildinni.
Áfram Reynir!