fbpx
Jón Erik á OL í svig.

Jón Erik lýkur keppni á vetrarólympíuleikunum með miklum sóma

Jón Erik Sigurðsson, skíðamaður úr Fram, lauk keppni á vetrarólympíuleikunum í gær með þátttöku í svigi.  Jón Erik var með startnúmer 47 af 96 keppendum og var hann í 30. sæti eftir fyrri ferðina.  Þar sem 30 efstu mönnum eftir fyrri ferð er snúið við í seinni ferð þá startaði Jón Erik fyrstur og skíðaði hann sig upp í 25. sæti að lokum með góðri seinni ferð. 
Þetta er frábær árangur hjá Jóni Erik á hans fyrstu vetrarólympíuleikum og bestu árangur Íslendings í alpagreinum á vetrarólympíuleikum síðastliðin 20 ár.

Jón Erik keppti einnig í stórsvigi sem fram fór á laugardaginn síðastliðinn.  Hann var með rásnúmer 45 af 77 keppendum og skíðaði sig upp 38. sæti í fyrri ferðinni.   Jóni Erik hlekktist því miður á í seinni ferðinni en kemur reynslunni ríkari úr stórsvigskeppninni. 

Jón Erik er fyrsti keppandi Fram á vetrarólympíuleikum og markar þátttaka hans því tímamót í sögu Fram.  Árangur hans á mótinu er einnig eftirtektarverður og var hann svo sannarlega bæði Fram og Íslandi til mikils sóma.

Til hamingju Jón Erik

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!