Næsti leikur er á miðvikudaginn í undanúrslitaeinvíginu við Val.
Leikurinn fer fram klukkan 19:30 í N1-Höllinni og ljóst að nú er að duga eða drepast. Stelpurnar ætla að leggja líf og sál í þennan leik og halda sér inni í baráttunni um titilinn.
Hittumst í N1-höllinni og fylgjum stelpunum til sigurs á miðvikudaginn!
Áfram FRAM!