fbpx
Fram25template-Olga Ingibjörg

Olga Ingibjörg Einarsdóttir lánuð til Fram!

Olga Ingibjörg Einarsdóttir er gengin til liðs við Fram að láni frá Breiðabliki.

Olga er 18 ára gamall miðvörður sem er uppalin hjá Blikum og á, þrátt fyrir ungan aldur, tæplega 70 meistaraflokksleiki, flesta í Lengjudeildinni, með Augnabliki og svo HK, sem hún spilaði með sem lánsmaður á síðasta tímabili. Hún á svo 9 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Olga er ljónhörð og afar efnileg, örugg með boltann og les leikinn vel. Við teljum hana styrkja okkar hóp verulega og hlökkum mikið til að sjá hana vaxa og dafna enn frekar í bláu treyjunni í sumar.

Við viljum að lokum þakka Blikum fyrir afar vönduð vinnubrögð og góð vinnubrögð.

Velkomin í dal draumanna Olga!

 

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!