fbpx
Stuðningsmannakvöld - banner

Stuðningsmannakvöld knattspyrnudeildar Fram

Knattspyrnudeild FRAM býður alla stuðningsmenn velkomna á stuðningsmannakvöld í VIP-salnum fimmtudaginn 11. september kl. 18:00.

Á boðstólum verða bjór og hamborgarar og mun Agnar Þór Hilmarsson veislustýra kvöldinu.

Dagskráin:
–  Ávarp formanns, Guðmundar Torfasonar
–  Þjálfarar og leikmenn meistaraflokks karla og kvenna mæta og spjalla við stuðningsmenn
–  Happdrætti – árituð FRAM treyja
–  Pub-Quiz!

–  Kl. 20:15 hefst leikur Úlfanna gegn Skallagrími á Lambhagavelli – leikur um 3. Sæti 5. deildar.  Úlfarnir eru venslalið Fram og skipaðir uppöldum Frömurum.

Í hálfleik verður dregið í happdrætti og í vinning er árituð FRAM-treyja með áritunum allra leikmanna.


Framundan eru tveir gríðarlega mikilvægir leikir í vikunni.  Við hvetjum alla FRAM-ara til að fjölmenna, bæði á stuðningsmannakvöldið og á völlinn, og sýna liðum okkar þann kraft sem aðeins okkar fólk getur skapað.


FRAM býður stuðningsmönnum í rútur á komandi útileiki:

Stjarnan – FRAM föstudaginn 12. september kl. 18:00:  Skráning þarf að lágmarki 20 manns fyrir miðnætti fimmtudaginn 11. september.

FH – FRAM sunnudaginn 14. september kl. 14:00:  Skráning þarf að vera að lágmarki 20 manns fyrir kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 13. september.

Skráning í rútu á dadi@fram.is

Fjölmennum og sýnum okkar liðum stuðning á útivelli í þessum gríðarlega mikilvægu leikjum!

ÁFRAM FRAM!

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!