Það var líf og fjör í Egilshöll í gær þegar barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Fram hélt sína árlegu vinaæfingu. Iðkendur í 6. og 7. flokki karla og kvenna voru hvött til þess að bjóða vinum sínum og vinkonum með á æfingu.
Þjálfarar yngri flokka tóku vel á móti krökkunum og stýrðu fjölbreyttri og skemmtilegri æfingu. Stelpurnar byrjuðu kl. 16:30-17:30 og strákarnir tóku við kl. 17:30-18:30. Alls mættu um 180 krakkar á æfinguna og þó nokkuð var um ný andlit. Að æfingu lokinni fengu allir glaðning frá barna- og unglingaráði og héldu til síns heima hressir og kátir.
Vonandi sjáum við sem flesta áfram á æfingum hjá Fram á næstunni. Allir velkomnir.

