Níundi áratugurinn gaf okkur mikið af góðu barnaefni í sjónvarpi. Og líka slatta af efni sem var bara skrítið. Í seinni flokkinn falla myndasögurnar um Daníel sullskó. Eins og nafnið gefur til kynna var Daníel þessi piltur sem hafði sérstaka nautn af því að sulla í vatni – klæddur í þar til gerðum skófatnaði eða eins og sagði í kynningarlaginu: „Daníel sullskór sem sjáið þið hér, sullar í skónum í hverju sem er. Stormi og hríð, reging eða blíð´, sér ekki vitund á kappans skóm.“ Eins snjöll og hugmyndin um Daníel sullskó kann að hafa virst á teikniborðinu, leiddi hún höfunda þáttanna fljótlega í nokkrar ógöngur. Það eru einfaldlega takmörk fyrir því hvaða söguþráð má spinna um persónu sem gerir ekki annað en að sulla – jafnvel þótt skórnir hans haldist tandurhreinir eftir.
Daníel sullskór hefði verið í essinu sínu á Kópavogsvelli í kvöld – en fáir aðrir. Það var nepjulegt, vindasamt og umfram allt blautt í Kópavoginum. Fréttaritari Framsíðunnar mætti þangað einn síns liðs eftir að hafa lóðsað hóp almannatengla um miðborgina seinnipartinn. Kjarnhitinn var því kominn nokkuð niður áður en flautað var til leiks.
Framkonur töpuðu 3:4 fyrir Eyjakonum í upphafsleik Íslandsmótsins í rokleik og ljóst að ekki biði auðvelt verkefni gegn Blikum, sem borið hafa höfuð og herðar yfir önnur lið deildarinnar upp á síðkastið. Umgjörð leiksins var líka prýðisgóð. Ágætis hamborgarar og léttur lager á dælu. Sjóðheitt kaffi hefði þó verið klókara val.
Ashley Orkus stóð á milli stanganna í Framliðinu og aftasta varnarlínan var skipuð þeim Emmu Young, Freyju Dís og Isabelle Gilmore, með Löru Margréti og Hörpu í bakvörðum. Hildur María, Sara Svanhildur og Brookelyn Entz á miðjunni. Alda og Taylor Hamlett frammi. Planið var greinilega að liggja djúpt og verjast – nema hvað?
Það voru ekki ýkjamargir Framarar í stúkunni og fréttaritarinn settist einn. Heimakonur byrjuðu með nokkrum látum en tókst ekki að skapa sér nein opin marktækifæri fyrr en eftir stundarfjórðungsleik þar sem Blikakona slapp einn í gegn en Orkus náði að fleygja sér fyrir skotið á síðustu stundu. Þremur mínútum síðar urðu furðuleg mistök í Blikavörninni þess valdandi að Sara Svanhildur komst í dauðafæri ein og óvölduð en skot hennar fór framhjá.
Blikar réðu ferðinni og Framliðinu tókst illa að koma boltanum af eigin vallarhelmingi. Eftir um hálftíma leik small boltinn í stöng Frammarksins. Það voru hins vegar Framarar sem voru nær því að komast inn í hlé með forystu eftir að Sara Svanhildur reyndi langskot af eigin vallarhelmingi sem sveif í fallegum boga yfir markvörð Blika sem var í skógarferð, en boltinn skoppaði rétt framhjá markinu.
Í leikhléi var skrafað við mann og annan. Hressir Frampabbar fræddu fréttaritarann um hvernig Eyjaleikurinn hefði gengið fyrir sig og á barnum var Þorvaldur Makan, sem stálminnugir muna eftir í Framtreyjunni fyrir rúmum tveimur áratugum. Urðu þar fagnaðarfundir.
Eftir hlé hlammaði fréttaritarinn sér niður hjá Daða Guðmunds, Svanhvíti og Auði. Þar var nú ekki töluð vitleysan.
Framliðinu tókst bærilega að halda Blikaliðinu í skefjum, en að lokum hlaut eitthvað að bresta. Frábær fyrirgjöf utan af kanti á 58. mínútu rataði beint á kollinn á framherja UBK og staðan 1:0. Skömmu síðar kom Una Rós inná fyrir Öldu. Þegar seinni hálfleikur var akkúrat hálfnaður gerðu heimakonur nánast út um leikinn. Sending fyrir Frammarkið var slegin út en boltinn hrökk fyrir fætur óvaldaðs leikmanns sem skoraði auðveldlega í bláhornið, 2:0.
Katrín Rós kom inná fyrir Freyju á 71. mínútu. Grænklæddar virtust sáttar við tveggja marka forystuna og Fram tókst aðeins að komast inn í leikinn. Góð stunga inn á Hamlett á 77. mínútu endaði með bylkmingsskoti í slánna. Hinu megin átti Orkus eina stórkostlega vörslu undir lokin en leikurinn fjaraði út – þó dró það til tíðinda að í uppbótartíma kom fjórtán ára leikmaður, Eyrún Björg Benediktsdóttir inná fyrir Hamlett. Vel gert!
Tap á erfiðum útivelli og við glataðar aðstæður staðreynd. Varnarleikurinn er þó að mestu leyti þéttur og fréttaritarinn mun bjartsýnni á tímabilið fyrir eftir leikinn en fyrir og er hann þó Bölmóður spámaður sinnar kynslóðar. Næsti leikur er heima gegn Þrótti á þriðjudag!
Stefán Pálsson