Garðabær er skrítið sveitarfélag. Liggjandi mitt á milli Hafnarfjarðar og Kópavogs sem bæði slaga uppí að vera alvöru bæir, er Garðabær sem enginn veit hvað er. Þar er samt Vínbúð, risastór súpermarkaður, húsgagnaverslun og tvö fótboltalið, sem bæði sinna körfubolta en aðeins annað leggur einnig stund á parketglímu. Mörg ár í röð hefur Knattspyrnufélagið Fram mætt í Garðabæinn, fullt væntinga, en orðið fyrir sárum vonbrigðum og mátt þola ljóta skelli. Það var ekki raunin í kvöld.
Fréttaritari Framsíðunnar tók daginn snemma. Hann leiddi sögugöngu um Vesturbæinn með hópi háskólaborgara og endaði svo í íhaldsbælinu Kaffi Vest þaðan sem hann fékk skutl í fyrirpartý í Garðabænum hjá Þorbirni Atla, frú Ragnheiði og öllum hundunum sem virtist fjölga eftir því sem á leið. Þau reyndust höfðingjar heim að sækja. Indverskar kræsingar flutu um öll borð: Þarna var Tikka massalla og nóg af hvítlauks-naanbrauði!
Rétt fyrir leik var haldið af stað. Addi í bankanum Ívar Guðjóns og fleiri keyrðu að Stjörnuvellinum, þeirri alræmdu kuldakistu. Gráa peysan var dregin fram. Mannskapurinn var til í allt!
Framara vantaði lykilmenn vegna meiðsla. Simon og Vuk voru hvorugur með. Byrjunarliðið var því á þessa leið: Viktor í marki, Sigurjón, Þorri og Kyle í öftustu röð. Halli og Kennie í bakvörðum. Ægir Jarl aftastur á miðjunni, Freyr og Fred þar fyrir framan. Róbert og Byström uppi á toppi.
Framarar mættu mun ákveðnari til leiks og sóttu frá fyrstu mínútu. Heimamenn lágu hins vegar til baka og reyndu alfarið að stóla á skyndisóknir. Kannski ekki galin taktík því þrátt fyrir að fara lítið fram á við tókst þeim að skapa sér tvö verulega góð færi í hálfleiknum sem bæði enduðu með skotum framhjá.
Marktækifæri Framara voru öllu fleiri. Byström var nærri því að skora eftir flottan undirbúning frá Fred, sem var í essinu sínu á miðjunni. Enginn lék þó betur en Freyr í leiknum – og enginn af meiri ákafa en Róbert sem hljóp út um allan völl og reyndi í sífellu að koma sér í færi. Fréttaritarinn lærði vel sína eðlisfræði í grunnskóla og vissi að kalt loft sígur niður á við en heitt loft þrýstist upp. Því ákvað hann að vænlegasta taktíkin í kæliboxinu sem er Stjörnuvöllurinn væri að standa efst. Það gerði líka félagi Lúðvík og fóstbræðurnir Skúli Helga og Snorri Már. Aðrir voru fífldjarfari og fengu sér sæti. Skjaldsveinninn Valur Norðri var í útskriftarveislu og lét ekki sjá sig!
Þrátt fyrir allnokkra yfirburði í fyrri hálfleik stóð mannskapnum ekki alveg á sama í hléi. Árangur okkar í Garðabænum hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir í gegnum tíðina. Það var fámennt á vellinum. Hálfur Garðabærinn líklega staddur í sömu útskriftarveislu og Skjaldsveinninn.
Bæði lið mættu óbreytt í seinni hálfleikinn og heimamenn gerðu sig líklega til að færa sig aðeins framar á völlinn. Aukaspyrna þeirra eftir tæplega klukkutíma leik virtist ætla að vera hættuleg en Viktor var vel vakandi. Hinu megin gerðu Freyr og Fred harða hríð að marki Stjörnunnar, sem lauk með því að Róberti tókst að koma boltanum í mark en aukaspyrna hafði verið dæmd á Fred fyrir heldur litlar sakir. Beint í kjölfarið fékk Róbert svo frían skalla eftir sendingu frá Kennie, en hann var varinn í horn. Enn fengu Framarar svo dauðafæri eftir að Stjörnumarkvörðurinn sendi beint á Kyle sem var fljótur að koma boltanum á Róbert sem náði ágætu skoti, boltinn var varinn og rann svo meðfram marklínunni. Ísinn hlaut að brotna fljótlega!
Kennie átti gott skot í hliðarnetið þegar seinni hálfleikur var hálfnaður og skapaði aftur hættu tveimur mínútum síðar. Enn kom Kennie við sögu þegar þeir Freyr og Fred gerðu harða hríð að marki Garðbæinga á 69. mínútu en þvældust hvor fyrir öðrum. Hinu megin á vellinum vildu heimamenn fá víti en uppskáru ekkert hjá prýðilegum dómara leiksins.
Á 72. mínútu kom markið langþráða. Freyr hirti boltann á miðjum vellinum, stakk sér framhjá varnarmönnum Stjörnunnar og sendi fyrir þar sem Róbert kom aðvífandi og skoraði auðveldlega, 0:1 og fögnuður mikill hjá þeim Frömurum sem enn voru með blóðflæði í útlimunum. Beint í kjölfarið gerði þjálfarateymið tvöfalda skiptingu. Israel kom inná fyrir Kyle og Atli Þór fyrir Jakob, sem var greinilega ekki kátur með þá ákvörðun. Stjörnumenn reyndu að fá eitthvað út úr leiknum en okkar menn stóðu sig vel í að drepa hann niður og Rúnar hægði enn á öllu með skiptingum. Fyrst kom Mási inn fyrir Róbert og síðar Baddi fyrir Fred.
Pirringur heimamanna var mikill og braust fram í klaufalegu broti á Atla Þór sem gerði sig líklegan til að hefja skyndisókn en var sparkaður niður og útkoman varð beint rautt spjald. Í uppbótartímanum mátti þó minnstu muna að bláklæddir stælu stigi en Viktor gerði mjög vel í að verja (nánast setjast) oná fremur slakt skot úr dauðafæri.
Frábær sigur og fágætt hreint mark hjá Frömurum og það þótt Tibbling hafi verið fjarri góðu gamni. Þorbjörn Atli bauð í sigurpartý í hundabænum en fréttaritarinn var orðinn framlágur og lét þar við sitja. Risaslagur framundan næsta föstudagskvöld, heima gegn Blikum.
Stefán Pálsson