Að vinna fótboltaleiki er góð skemmtun. Fréttaritari Framsíðunnar hefur enga tölu á öllum þeim tapleikjum sem hann hefur skrifað um frá því að Tóti íþróttafulltrúi plataði hann fyrst til að skrifa leiklýsingar af Framleikjum fyrir hundrað árum – og alltaf voru tapleikirnir erfiðastir. Að skrifa eitthvð hnyttið og uppörvandi eftir að rauðhærður táningur í HK skallaði í netið á lokamínútunum í kórnum í enn einni niðurlægingunni í Lengjunni eða e-ð álíka. Lesturinn var sömuleiðis óverulegur. Hvaða skynsöm manneskja gengur líka þau svipugöng að lesa um tapleik síns liðs?
Það að skrifa um sigurleiki er hins vegar leikur einn. Allir lesendur eru í skýjunum og vilja bara mjólka endorfínkirtilinn örlítið lengur. Það að setjast niður til að fjalla um 4:3 sigur á UBK er því ekki sérlega kvíðavaldandi…
Fréttaritari Framsíðunnar tók leið 18 úr Hlíðunum laust fyrir klukkan fimm til að ná í tíma fyrir steikarhlaðborðið sem boðið var uppá í Úlfarsárdalnum. Borðin svignuðu af nautasteik, sósu og salati og fjöldi fólks lét sig ekki vanta. Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar stýrði pallborði þar sem sparkspekingar tjáðu sig um komandi leik. Salurinn var fullskipaður. Fyrir okkur sem munum eftir leikjum í Safamýri eða á nýtilbúnum æfingavellinum í Úlfarsárdal í Lengjudeildinni, þar sem nánast var hægt að heilsa hverjum einasta vallargesti með nafni, eru þetta einstök og stórkostleg viðbrigði. Félagið okkar er komið á stað sem ekkert okkar hefði getað látið sig dreyma um fyrir áratug! Takk, þið öll sem komuð að þessu verkefni!
Liðsuppstillingin var sú sama og í Garðabænum fyrir viku. Viktor í marki. Þorri, Sigurjón og Kyle í varnarlínunni með Halla sem bakvörð/kantmann. Ægir Jarl aftastur á miðjunni, Fred og Freyr þar fyrir framan. Jakob Byström og Róbert frammi og Kennie þar sem honum sýndist hverju sinni. Simon og Atli Þór voru báðir utan hóps – væntanlega vegna meiðsla.
Fréttaritarinn rölti niður úr veislusalnum og ákvað að fá sér ekki sæti í stúkunni, þar sem næðingsvindur var á leiknum líkt og einkennt hefur flesta leiki í sumar. Þess í stað stóð hann efst í stúkunni með félaga Rabba, Þorbirni Atla, frú Ragnheiði, Stefáni nafna og Kristjáni Hnífsdalstrymbli eftir að komið var aðeins inn í leikinn. Þetta var glæsilegur hópur að vallarsýn og innræti.
Fram byrjaði með látum og fékk fyrstu færin á upphafsmínútunum. Strax á 3. mínútu átti Halli gullfallega sendingu inn í teiginn þar sem Kennie stökk hæst allra og skallaði í bláhornið, óverjandi fyrir markvörð UBK. Þótt enginn væri markafleygurinn urðu fagnaðarlætin á pöllunum innileg. Enginn hafði búist við að taka forystuna svo snemma. Tveimur mínútum síðar var staðan orðin 2:0. Freyr átti stutt sendingu á Kennie sem fíflaði varnarmanninn sem hafði reynt að verjast honum, sneri sér í gegnum vörnina og skoraði auðveldlega. Fram var komið með örugga forystu og leikurinn vart byrjaður!
Róbert var flaggaður rangstæður rétt eftir seinna markið og Viktor varði í tvígang vel frá gestunum, sem voru samt furðudaufir í leiknum. Framarar héldu áfram að sækja og fengu hvert tækifærið á eftir öðru. Róbert átti skot á 19. mínútu sem var varið og síðar var Kennie tvisvar nærri því að skora. Á 31. mínútu fengu gestirnir umdeilanlega hornspyrnu, sem okkar menn vörðust ævintýralega illa og staðan varð allt í einu 2:1.
Framarar blésu aftur til sóknar eftir markið og þeir Fred og Freyr áttu góða atlögu að markinu strax á næstu mínútu. Kyle lagðist meiddur í jörðina og Israel leysti hann af hólmi. Félagarnir Fred og Freyr héldu áfram að skemmta öllum viðstöddum með frammistöðu sinni. Freyr var einfaldlega stórkostlegur í kvöld og það er gjörsamlega óverjandi að hafa hann ekki í byrjunarliði hjá okkur eins og staðan er í dag – óháð því hvaða kanónur við kunnum að vera með á bekknum.
Á 41. mínútu tók Fram svo löngu verðskuldaða forystu þegar Fred stakk sér í gegnum Blikavörnina, sendi svo til hliðar á Frey sem drap botlann óaðfinnanlega og skoraði svo vandræðalaust. Fram 3:1 UBK 1… Eftir markið var brotið fruntalega á Halla án þess að dómari leiksins hirti um að gera nokkrar ráðstafanir.
Eftir hlé héldu yfirburðirnir áfram. Jakob var straujaður í vítateig gestanna á 47. mín. en ekkert dæmt. Áfram sóttu Framarar og komust næst í alvöru færi þegar aukaspyrna frá varnarmanni small í þversláttni á 55. mín. og Byström kom aðvífandi og negldi boltanum í netið í frákastinu, 4:1 og allt undir kontról!
Enn hélt Fram áfram að sækja (í raun hefði þessum leik átt á ljúka 8:1 eða eitthvað álíka). Eftir klukkutíma leik minnkuðu Blikar hins vegar muninn í 4:2 eftir darraðardans í Framvörninni. Enginn skildi hvað hefði í raun gerst.
Mínútu síðar vildi Róbert fá víti á hinum enda vallarins, en dómarinn gaf ekkert fyrir það. Skömmu síðar kom Vuk inná fyrir Róbert sem skilað hafði frábæru dagsverki. Blikar minnkuðu muninn eftir snarpa sóknarlotu í varnarlínu Fram sem endar á marki eftir 60 mín.
Eftir tíu mínútna ládeyðu dæmdi dómari leiksins vítaspyrnu á Viktor markvörð fyrir litlar sakir. Gestirnir skoruðu, 4:3. Fram vildi víti eftir það sem virtist augljóst brot á Frey á 75. mín. Skömmu síðar fóru Jakob og Freyr af velli fyrir Badda og Má. Þegar loks var flautað til leiksloka brutust út innileg faðmlög þar sem okkar menn fögnuðu góðum árangri. Fram er eftir umferðina komið á góðan stað í topp-3 slagsmálunum en annað verður látið slæda!
Stefán Pálsson
Kristinn Steinn fangaði augnablikin sjá hér: https://www.flickr.com/photos/99255499@N07/collections/72157722567995480/