Sumarið 2026 hefur verið afar áhugavert fyrir okkur sem fylgjum kvennaliði Fram. Eftir gott tímabil í Bestu deildinni í fyrra sem nýliðar, var Framkonum spáð lóðbeint niður um deild af flestum sparkspekingum og byrjun tímabilsins virtist ætla að styðja þær bölsýnisraddir. Þótt Framliðið sýndi fína baráttu í flestum leikjum, lauk þeim undantekningarlítið með ósigrum og staðan á töflunni varð sífellt súrari. Það eina sem gladdi var stöku sigur í bikarnum. Í júlí hófst viðsnúningurinn mikli. Framliðið kom einbeitt úr fríi og hefur nú unnið þrjá deildarleiki í röð og opnað fallbaráttuna í Bestu deildinni upp á gátt.
Það var því mikil eftirvænting fyrir undanúrslitaleik Framara og skástriksliðs Grindavíkur og Njarðvíkur í undanúrslitum bikarkeppninnar í dag. Undir var úrslitaleikur á Laugardalsvelli gegn Þrótturum, nokkuð sem hvorugt félagið hefur getað látið sig dreyma um til þessa. Fréttaritari Framsíðunnar mætti peppaður í leið 18 úr Hlíðunum og strax á næstu stoppistöð slóst Kristján Freyr í hópinn – klyfjaður trommum og öllu sem við átti að éta. Veðrið var dásamlegt. Sólgleraugun á sínum stað en sólarvörnin gleymdist heima. Þetta yrði epískur stórleikur.
Fréttaritarinn, Hnífsdalstrymbillinn og Sigurður Freyr fengu sér sæti framarlega, fyrir miðju. Mætingin var prýðileg. Rétt tæplega 500 manns miðað við opinberar tölur og vantaði þó marga fastagesti sem vafalítið voru stokknir til útlanda eða austur á Hérað undan súldinni. Byrjunarlið Fram var það sama og í sigrinum góða gegn Víkingum á dögunum: Orkus í markinu. Emma, Gilmore og Harpa í öftustu varnarlínu með Entz og Katrín í vængbakvörðunum, Una Rós, Hildur og Sara Svanhildur á miðjunni. Taylor og Alda frammi.
Gestirnir byrjuðu umtalsvert betur. Framkonur lágu til baka og virtust ekki líklegar til að ógna á meðan GN fékk að leika með boltann úti á vellinum að vild og freista þess að finna glufu á vörninni. Það tókst á 18. mínútu þar sem einfalt skot fyrir utan teig rataði í markhornið, 0:1. Fram hafði ekki ógnað neitt fram að þessu en liðið vaknaði aðeins til meðvitundar og tveimur mínútum síðar skoppaði boltinn á marklínu Suðurnesjakvenna án þess að neinn næði að pota boltanum yfir línuna. Tíu mínútum síðar komst Taylor í ágætt færi eftir fínan undirbúning Katrínar. Það voru þó gestirnir sem áttu háskalegri færin og líklega máttum við þakka fyrir að sleppa inn í hálfleik markinu undir.
Það var múgur og margmenni í veitingasölunni og Framborgararnir og ölið á dælunum sjaldnast bragðast eins vel. Sólbrenndir stuðningsmenn furðuðu sig á deyfð okkar kvenna en bjuggust við miklum framförum eftir hlé. Þeir urðu fyrir vonbrigðum.
Eftir um fimm mínútna leik í seinni hálfleik komust gestirnir í 0:2 eftir klafs í teignum hjá okkar konum of snyrtilega vippu í hornið. Brekkan var orðin enn brattari. Sara Svanhildur reyndi á markvörð GN beint í kjölfarið, en skot hennar var máttlítið. Þær Hildur María voru einna skástar í fremur slöku Framliði í dag. Í hornspyrnunni í kjölfarið skapaðist stórhætta þegar gestirnir vörðu á marklínu – en ruku svo beint upp völlinn og voru hársbreidd frá því að auka muninn enn frekar en Orkus greip til hanboltamarkvörslu með fótunum.
Freyja kom inná fyrir Katrínu þegar hálftími var eftir. Lítið breyttist við skiptinguna og takturinn í leiknum féll mjög niður. Langskoti Hörpu var blakað yfir þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Hlín kom inná fyrir Söru Svanhildi á 76. mínútu. Skiptingin átti sér stað þegar gestirnir áttu horn og beint í kjölfarið kom þriðja markið – ótrúlega auðvelt og fyrirhafnarlítið. Á lokamínútunum gerðu Framarar þrefalda skiptingu sem ekki verður hirt um að rekja hér, enda var hún ekki tilraun til að breyta leiknum heldur viðurkenning á orðnum hlut. 0:3 tap var sársaukafull niðurstaða dagsins og draumurinn um úrslit á Þjóðarleikvangnum verður að bíða betri tíma. En enskumælandi tala um „bread and butter“ – „brauð og smér“ í þeirri merkingu að deildin er jú alltaf það sem málið snýst um. Önnur mót eru tímaþjófar og aukaatriði. Framundan en lífróður í Bestu deildinni og strax á miðvikudagskvöldið munu okkar konur mæta Val í sex stiga leik. Fréttaritari Framsíðunnar álpaðist til að bóka sér miða á David Byrne, forsprakka Talking Heads. This ain´t no party, this ain´t no disco!
Stefán Pálsson