fbpx
FREYR

Þar sem sólin aldrei skín

Gríski konungurinn Pyrrhos frá Epírus er helst kunnur fyrir að leiða her sinn gegn Rómverjum á Ítalíuskaga á þriðju öld fyrir upphaf okkar tímatals, vinna þar hvern sigurinn á fætur öðrum – en sigrar þessir reyndust svo dýru verði keyptir að þeir snerust að lokum upp í andhverfu sína. Af þessari ógæfu konungsins var búið til hugtakið Pyrrhosar-sigur. Segja má að hugurinn hafi leitað til þessa náfrænda Alexanders mikla um liðna verslunarmannahelgi þegar frækið Framliðið vann góðan sigur á Eyjamönnum í Þjóðhátíðarleiknum – en þó með því gjaldi að hálft liðið hreppti leikbann að launum. Dómari þess leiks dreifði gulum spjöldum eins og barþjónn á Tetris í Fishcersundinu e-pillum á ofanverðum tíunda áratugnum, í viðureign sem seint verður þó talin sérstaklega gróf eða hörð. Ljótt, ljótt sagði fuglinn.

Sú hætta var óneitanlega fyrir hendi að spjaldasúpan úr Eyjum og meiðsli og hnjask lykilmanna að auki myndi marka spor á toppslag Fram og KR í Dal draumanna í kvöld. Fréttaritari Framsíðunnar mætti til leiks tveimur tímum fyrir leik með leið 18 – öðrum þræði vegna þess að hann var staðráðinn í að gera bjórdælum Lambhagavallarins góð skil og hins vegar að læknisráði. Um hádegisbilið fór fréttaritarinn nefnilega í ristilspeglun hjá rannsóknarstofu hér í bæ. Eru þetta of miklar upplýsingar til að miðla á félagssíðu íþróttafélags? Njah, ritstjórnarstefna þessara leikskýrslna er á þá leið að engar upplýsingar eru dregnar undan. Auk þess er fyllsta ástæða til að hvetja sérstaklega karla sem skriðinir eru á sextugsaldurinn til að láta tékka á rumpnum – krabbi er dauðans alvara!

Með dass af kæruleysislyfi enn í blóðinu gekk fréttaritarinn inn í veislusalinn í Úlfarsárdal þar sem steikarar báru fram lambasneiðar í massavís með bernaissósu og málamynda-salati. Maturinn var ljúffengur og spekingar spjölluðu á sviðinu. Þar sem ljóst var að þéttskipað yrði í stúkuna nenntu fréttaritarinn og skjaldsveinninn, sem dúkkaði upp um svipað leyti, ekki að bíða lengi á efri hæðum heldur héldu niður í stúku til að finna sér sæti á kunnuglegum slóðum – og taka frá pláss fyrir Rabba trymbil og son. Mamma Guðjónssona var í næstu röð fyrir neðan og Garðar fv. sendiráðsbílstjóri en í dag ástríðuhjólagarpur í næsta sæti við hliðina. Það veitti ekki af því að koma snemma. Það var bongóblíða og brakandi sóla – af þeirri gerðinni sem kallar á að markmenn spili með derhúfu. Fréttaritarinn var í gula vestinu – nema hvað.

Viktor stóð í markinu en þriggja manna miðvarðarlínan var skipuð þeim Þorra, Kyle og Kennie. Eins og vænta mátti leit Kennie bara á þessa stöðu sem leiðbeinandi tilmæli og spilaði hvar sem honum sýndist hverju sinni. Mási og Halli voru vængbakverðir. Baddi byrjaði sinn fyrsta leik í sumar í sexunni, þar sem Ægir Jarl hefur farið á kostum það sem af er móti. Það voru stór skref til að fylla. Freyr og Fred lékur á miðjunni og Jakob og Vuk frammi. Þokkalega sterkt byrjunarlið en um leið og litið var yfir varamannabekkinn var ljóst hversu brotthætt þetta allt væri.

Á upphafsmínútu leiksins spændi Freyr sig í gegnum hálfa KR-vörnina en sóknin rann fljótt út í sandinn. Þetta reyndist svikalogn. Tveimur mínútum síðar breyttist vindáttin og reykinn af annars ljúffengum Framborgurunum lagði yfir stúkuna. Var þetta fyrirboði? Hugsanlega, því á næstu þremur mínútum skoruðu gestirnir tvívegis – í bæði skiptin eftir snarpar sóknir þar sem samhæfingarleysi varnar okkar reyndist augljóst. 0:2 og leikurinn varla hafinn!

Við tók afleitur leikkafli þar sem Framarar sóttu af veikum mætti, en í hvert sinn sem gestirnir unnu boltann virtist stórhætta skapast á augabragði. Vonarglæturnar voru helst þær þegar Fred náði sér á strik – hann var yfirburðabestur okkar manna í kvöld. Már, Freyr og Kennie áttu stöku rispur að auki, en fátt sem ógnaði að ráði. Það eina sem virtist koma KR-ingum í klandur voru hornspyrnur okkar manna – sem Halli tók allar sem eina. Á 21. mínútu átti hann prýðilega spyrnu fyrir sem Kennie var nærri því að skalla í netið og Baddi ógnaði vel á fjærstönginni líka.

Það voru þó gestirnir sem sköpuðu fleiri og betri færi, þannig átti Viktor frábæra handboltamarkvörslu með fótunum þegar fyrri hálfleiku var um það bil hálfnaður. Hornspyrna Halla á 26. mínútu rataði aftur á kollinn á Kennie en einn KR-ingurinn náði að skalla frá á marklínu á síðustu stundur! Frákastið rataði svo út í teig og litlu mátti muna að Framarar minnkuðu muninn. Á þessum leikkafla virtist Frammark liggja í loftinu, en þvert á það kom þriðja mark gestanna eftir hálftímaleik upp úr litlu.

Enn héldu skástu færi Framara áfram að koma úr hornspyrnum og á 34. mínútu viritst Kennie togaður niður í teignum eftir enn eina spyrnu Halla. Helgi dómari var hins vegar sjálfum sér samkvæmur að því leyti að leyfa allt peysutog, bakhrindingar og brot í hraðaupphlaupum gjörvallan leikinn. Engin spjöld fóru á loft. Óneitanlega var fullt innbyrðissamhengi í dómgæslunni en hvort þessi frjálshyggja á flautunni gat af sér betri leik er allt önnur spurning…

Þegar komið var fram yfir uppbótartíma fyrri hálfleiks náði Fred af harðfylgi að vinna hornspyrnu úr því sem virtist glatað færi. Enn og aftur tók Halli spyrnuna og enn og aftur hitti hann beint á pönnuna á Kennie Chopart, sem minnkaði muninn í 1:3 og snögglega voru við aftur komin með leik í Dal draumanna!

Fréttaritarinn og félagar fóru upp í veislusal í hléi og réðu sínum ráðum. KR-ingar höfðu að sönnu verið miklu betri allan fyrri hálfleikinn, en tækifærin til endurkomu voru vissulega til staðar. Þegar sjónvarpsskjárinn sýndi að liðin væru að koma sér aftur inn á völlinn og Kristóferð væri kominn inná fyrir Má, var tímabært að trítla aftur niður í stúku.

KR fór nær því að auka muninn í byrjun seinni hálfleiks eftir að sóknarmanni þeirra leiðst að keyra Þorra niður í teignum. Stórhætta skapaðist í kjölfarið en Framvörnin og Viktor – sem var virkilega góður í kvöld – vörðust vel. Næstu mínútur voru tilþrifalitlar og gestirnir virtust ætla að drepa leikinn og sigla sigrinum heima, þar til Jakob náði góðri rispu á 61. mínútu, skeiðaði upp hálfan völlinn og vann hornspyrnu. Hana tók… engin verðlaun fyrir að giska: Haraldur Einar Ásgrímsson – og hún rataði beint á kollinn á hverjum? Kennie Chopart! Tvö nánast eins mörk – og hefðu í raun átt að vera þrjú eða fjögur! Staðan 2:3 og allt í einu allt galopið!

Tveimur mínútum síðar náði Kristó í skoti framhjá í knallrauðu bússunum sínum og beint í kjölfarið var Róbert skipt inná fyrir Jakob. Kristó var svo nærri því að jafna metin eftir prýðilega þversendingu rétt í kjölfarið. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður á Freyr flotta sendingu á Vuk en KR-ingar vörðu í horn sem endaði í skalla rétt yfir markið. Beint í kjölfarið átti Baddi gott skot að marki sem KR-markvörðurinn sló út og fyrir fætur Vuk sem var hársbreidd frá því að jafna metin.

Þegar hér var komið sögu virtist jöfnunarmark Fram liggja í loftinu og þrátt fyrir allan fagurgala Kr-inga um sóknargildi var lið þeirra alveg búið að skipta yfir í kick-and-run bolta. En skyndisóknir þeirra voru þó skeinuhættar. Skömmu eftir frábæra markvörlu Viktors á 69. mínútu kom fjórða KR-markið eftir háflgert hnoð í teignum. Nokkrum mínútum síðar gerðu Framarar skiptingu í miðri hornspyrnu andtæðinganna, þar sem Sigfús Árni kom inná fyrir Badda. Hvort tímasetningu skiptingarinnar var um að kenna settu KR-ingar fimmta markið upp úr horninu og úrslitin ráðin.

Undir lokin fékk Ólíver Elís, nýkominn frá ÍR, að spreyta sig í stað Þorra. KR var nær því að skora sjötta markið en Fram að klóra í bakkann, ef frá er talið ágætt færi Freds undir lokin. Svekkjandi tap en fréttaritarinn ætlar samt að stilla sig um allt líkingamál tengt niðurgangi og þarmalosun, sem hefði þó verið svo auðvelt að prjóna inn í textann. Það sem varð okkur að falli var einfaldlega sú staðreynd að okkur vantaði of marga lykilmenn vegna meiðsla og leikbanna. Leikmannahópur Fram er vissulega breiðari en síðustu ár en hann er enn ekki orðinn nógu breiður til að geta tekist á við bestu liðin þegar svona stendur á. En næst er bara að vinna FH-stelpur í kjölfar sólmyrkvans og Stjörnuna í karlaflokknum eftir viku!

Stefán Pálsson

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!