Í gær fagnaði Þór Björnsson, íþróttastjóri Fram, merkum tímamótum en þá voru liðin 25 ár frá því að hann hóf störf hjá félaginu.
Á þessum aldarfjórðungi hefur Þór orðið órjúfanlegur hluti af starfi Fram. Hann gengur í öll þau fjölbreyttu verkefni sem falla til hjá félaginu og fáir þekkja starfsemi þess, sögu og fólk betur en hann. Það má því með sanni segja að Þór sé hafsjór af fróðleik þegar kemur að Fram.
Á árum áður var hann leikmaður félagsins og stóð þá á milli stanganna sem markvörður í handbolta. Síðar tók hann að sér þjálfun meistaraflokka og yngri flokka félagsins.
Knattspyrnufélagið Fram óskar Þór innilega til hamingju með 25 ára starfsafmælið og þakkar honum fyrir allt sem hann hefur lagt af mörkum fyrir félagið á þessum aldarfjórðungi.
Takk fyrir fyrstu 25 árin og næstu 25, Tóti!
Þökkum Jóhanni G. Kristinssyni fyrir myndirnar!