fbpx
Forsíða

Uppskeruhátíð yngri flokka í knattspyrnu

Það var hátíðarstemning í Úlfarsárdalnum laugardaginn 20. september ‏þegar uppskeruskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildarinnar fór fram. Sólin skein, mætingin var frábær og afar ánægjulegt var að sjá iðkendur og foreldra þeirra gera sér glaðan dag til að fagna nýafstöðnu tímabili yngri flokka. Iðkendum voru veittar viðurkenningar og boðið var upp á grillaðar pylsur og ís.

Iðkendur í 6., 7. og 8. flokki fengu viðurkenningarskjöl þar sem þeim var þakkað fyrir þeirra framlag á starfsárinu. Í 3., 4. og 5. flokki voru veitt verðlaun til bestu leikmanna ársins og til þeirra leikmanna sem mestar framfarir hafa sýnt á síðastliðnu tímabili. Frábær dagur þar sem gleðin var í fyrirrúmi.

Það er hefð fyrir því að veita einum leikmanni yngri flokkanna Eiríksbikarinn sem er gefinn af Ríkharði Jónssyni, landsliðsmanni Fram til margra ára, til minningar um Eirík K Jónsson knattspyrnumann úr Fram. Eiríksbikarinn er veittur þeim einstaklingi sem með ástundun sinni og framkomu innan sem utan vallar er sjálfum sér og félaginu til sóma.

Að þessu sinni hlaut Rebekka Ósk Elmarsdóttir leikmaður í 3. flokki Eiríksbikarinn. Rebekka Ósk er góður félagsmaður og frábær liðsfélagi sem hefur jákvæð áhrif á hópinn. Hún er öflug í störfum sínum fyrir félagið hvort sem er innan vallar eða utan. Hún er ávallt reiðubúin að hjálpa sínu félagi við margvísleg störf og nálgast öll sín verkefni af yfirvegun. Rebekka Ósk er góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur og við erum stolt af því að hafa hana í okkar röðum.

Í 5. flokki karla hlaut Alexander Orri Guðnason verðlaun fyrir mestar framfarir og Bjarki Reyr Mánason fyrir besta leikmann

Í 5. flokki kvenna hlaut Kara Sól Elvarsdóttir verðlaun fyrir mestar framfarir og Jóhanna Þórunn Gunnarsdóttir fyrir besta leikmann. 

Í 4. flokki karla var Daníel Joseph Kevin Kent verðlaunaður fyrir mestar framfarir og Gísli Þór Árnason hlaut verðlaun fyrir að vera besti leikmaður flokksins.

Í 4. flokki kvenna hlaut Sandra Karen Vilhelmsdóttir verðlaun fyrir mestar framfarir og Bryndís Día Elmarsdóttir fyrir að vera besti leikmaðurinn.

Í 3. flokki karla hlaut Aron Ingi Gunnlaugsson verðlaun fyrir mestu framfarirnar á síðasta ári og Guðmundur Ágúst Héðinsson hlaut verðlaun fyrir að vera besti leikmaðurinn.

Í 3. flokki kvenna hlaut Amelía Orka Gatladóttir verðlaun fyrir mestu framfarirnar á síðasta ári og María Kristín Magnúsdóttir hlaut verðlaun fyrir að vera besti leikmaðurinn.

Að venju var valinn Framdómari ársins og að þessu sinni hlaut Kristjón Bjartur Brynjarsson þau verðlaun. 

Myndir frá deginum má finna hér: Uppskeruhátíð BUR Knattspyrna Fram 2025 | Flickr

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!