fbpx
Sjálfboðaliðar upplýsingaskjáir

Langar þig að vinna á heimaleikjum ? FRAM leitar eftir sjálfboðaliðum í sumar

Barna- og unglingaráð FRAM, í samvinnu með knattspyrnudeild, leitar að forráðamönnum iðkenda til að taka þátt í framkvæmd heimaleikja meistaraflokks karla og kvenna sumarið 2026.

👥 Hlutverk í boði

  1. Sjoppustjórar (4–5 aðilar)
  • Undirbúa leiki
  • Samskipti við rekstrarstjóra (Daði)
  • Skipuleggja mönnun
  • Stýra sjálfboðaliðum
  • Sjá um uppgjör og frágang
  1. Sjálfboðaliðar (ótakmarkað)
  • Vinna á vöktum (úthlutað í samráði við sjoppustjóra)
  • Fær úthlutað leikjum fram í tímann
  • Sinnir sölu á mat, drykkjum eða öðrum verkefnum á leikdegi
  • Verkefni t.d.:
    • Sala á mat og drykkjum
    • Grilla eða setja á hamborgara
    • Þjónusta við áhorfendur
    • Sala á drykkjum
    • Sala á varning
    • Frágangur eftir leiki með sjoppustjóra
    • Frágangur eftir leiki í stúku

SKRÁNING í bæði hlutverk: https://forms.gle/8rH5dCoTkiPt4dUk9 

💰 Greiðslur í sjóð iðkanda

  • Sjálfboðaliðar: 10.000 kr. per vakt
  • Sjoppustjórar: 10.000 kr. + 5.000 kr. álag per vakt

👉 Hægt að nýta greiðslur í:

  • Æfingagjöld hjá Fram 
  • Keppnisferðir iðkenda í öllum íþróttagreinum
  • Annað tengt íþróttaiðkun barna hjá FRAM

⚠️ Mikilvægt

  • Forráðamaður er skráður á vaktina
  • Ekki má senda iðkanda án forráðamanns á vakt
  • Iðkandi þarf að vera 12 ára + með forráðamanni
  • Forráðamenn yngri barna hjá Fram mega skrá sig (án barna) 

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!