Opnað hefur verið fyrir skráningu í Real Madrid Foundation Clinic knattspyrnuskólann á Íslandi – einstök knattspyrnuupplifun sem byggir á aðferðafræði og gildum Real Madrid Foundation undir stjórn sérhæfðra þjálfara frá Real Madrid Foundation.
Real Madrid Foundation Clinic býður upp á einstakar knattspyrnubúðir fyrir börn og unglinga (5-17 ára) þar sem þjálfun, skemmtun og persónuleg þróun fara saman. Þjálfað er eftir opinberri aðferðafræði Real Madrid Foundation, með áherslu á tæknilega færni, leikskilning og jákvæð gildi eins og liðsheild, virðingu og vinnusemi.
Knattspyrnuskólinn fer fram á Lambhagavelli, dagana 17. til 21. ágúst 2026 og þátttakendur munu æfa undir leiðsögn þjálfara frá Real Madrid Foundation.
- Daglegar æfingar undir stjórn þjálfara frá Real Madrid Foundation
- Markviss og uppbyggileg þjálfun samkvæmt aðferðafræði RMF
- Faglegt og alþjóðlegt æfingabúðaumhverfi
- Aldursskiptir hópar
Takmarkaður fjöldi plássa er í boði og því mælum við með að þið tryggið ykkar iðkanda pláss tímanlega.
Allt skipulag — skráning, greiðslur og samskipti við Real Madrid Foundation — eru í höndum Hill Sports Agency, opinbers samstarfsaðila Real Madrid Foundation Clinics á Íslandi.
Skráning er nú hafin á Abler!
Nánari upplýsingar og skráning hér: www.rmfclinicsiceland.com
