fbpx
687486809_1561830795942867_8414386772605379354_n

Lokahóf handknattleiksdeildar Fram

Lokahóf Handknattleiksdeildar Fram var haldið síðastliðinn fimmtudag, 30. apríl. Þar komu leikmenn, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar og styrktaraðilar saman og gerðu sér glaðan dag með frábærum veitingum frá Lúx veitingum og góðri skemmtun með búnaði frá Rent a party.

Venju samkvæmt voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi leikmenn auk þess sem veittar voru viðurkenningar fyrir áfangaleiki. Þá kvöddum við einnig leikmenn sem halda á vit nýrra ævintýra eða eru að leggja skóna á hilluna.

Veitt verðlaun voru eftirfarandi;

Meistaraflokkur karla

Besti leikmaður: Ívar Logi Styrmisson

Mikilvægasti leikmaður: Breki Hrafn Árnason

Efnilegasti leikmaður: Max Emil Stenlund

Meistaraflokkur kvenna

Besti leikmaður: Harpa María Friðgeirsdóttir

Mikilvægasti leikmaður: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín

Efnilegasti leikmaður: Dagmar Pálsdóttir

Þá hlaut Valgerður Arnalds viðurkenningu eftir að hafa spila yfir 100 leiki fyrir meistaraflokk

U-lið karla

Besti leikmaður: Arnþór Sævarsson

Haukur í horni: Alex Unnar Hallgrímsson

U-lið kvenna

Besti leikmaður: Sara Rún Gísladóttir

Haukur í horni: Arna Sif Jónsdóttir

Á lokahófinu kvöddum við einnig Sunnu Jónsdóttur og Rúnar Kárason, sem bæði lögðu skóna á hilluna við lok tímabils. Það var ánægjulegt að sjá Sunnu, sem á að baki farsælan feril hér heima og erlendis, ljúka ferlinum hjá Fram á nýliðnu tímabili. Hún var meðal annars Íslandsmeistari með Fram árið 2013 áður en hún fór utan í atvinnumennsku.

Rúnar Kárason var einnig að ljúka sínum ferli eftir að hafa spilað undanfarin þrjú tímabil hjá uppeldisfélagi sínu, Fram. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með fram í fyrra en á að baki farsælan feril sem spannar yfir 20 ár í meistaraflokki með Fram, ÍBV og mörgum af bestu liðum Þýskalands og Danmerkur.

Þó svo að þau Rúnar og Sunna hafi nú lagt skóna á hilluna mun Fram áfram njóta þekkingu þeirra og reynslu þar sem þau munu bæði starfa við þjálfun yngri flokka hjá félaginu.

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!