fbpx
FRAMhús vefur

Fram : Víkingur – fjórtán merkar viðureignir

Fram og Víkingur mætast í Bestu deild karla á sunnudag. Það er prýðilegt tilefni til að rifja upp nokkrar minnisstæðar viðureignir þessara liða í gegnum tíðina:

1918, Íslandsmót

Víkingar kepptu í fyrsta sinn á Íslandsmóti sumarið 1918 og þurftu að leika á undanþágu þar sem hálft liðið hafði ekki náð átján ára aldri. Öllum að óvörum veittu þeir margföldum Íslandsmeisturum Fram mesta keppni af öllum. Liðin mættust í hreinum úrslitaleik í lokaferðinni, þar sem Framarar höfðu betur með sex mörkum gegn þremur. Áætlað var að 3 þúsund manns hafi mætt á leikinn, en það var um fimmtungur Reykvíkinga.

1940, Reykjavíkurmót

Mestu óeirðir íslenskrar knattspyrnusögu áttu sér stað eftir leik Fram og Víkings í Reykjavíkurmótinu vorið 1940. Víkingar unnu 1:0 eftir vítaspyrnu sem sérvitur dómari leiksins dæmdi á brot sem átti sér stað á miðjum vellinum. Eftir að flautað var til leiksloka brutust út óeirðir þar sem gerður var aðsúgur að leikmönnum og dómurum, bifreiðum var velt á hvolf og lögreglan grýtt. Þrjátíu manns voru handteknir og færðir í fangaklefa.

1946, Íslandsmót

Framarar urðu Íslandsmeistarar í knattspyrnu sumarið 1946 eftir að hafa tekið í notkun sitt eigið félagssvæði í Skipholti. Liðið vann fjóra af fimm leikjum sínum í mótinu en gerði ævintýralegt jafntefli í þeim fimmta, 5:5 gegn Víkingum! Markahrókurinn Vatýr Guðmundsson skoraði fernu á stundarfjórðungi í leiknum. Hann var faðir Framarans góðkunna, Valtýs Bjarnar.

1979, Íslandsmót

Víkingur og Fram mættust í fyrstu umferð Íslandsmótsins 1979. Leikið var á Melavelli enda Laugardalsvöllur sjaldnast tilbúinn í upphafi leiktíðar. Framarar unnu 3:1 í leik þar sem Marteinn Geirsson sneri aftur eftir stuttan atvinnumannaferil í Belgíu og ungur framherji frá Vestmannaeyjum skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fram, Guðmundur Torfason.

1983, Reykjavíkurmót

Framarar léku í næstefstu deild sumarið 1983 en Víkingar voru ríkjandi Íslandsmeistarar. Engu að síður kom Reykavíkurmeistaratitillinn í hlut Fram eftir 3:2 sigur á Víkingum á Melavelli. Hafþór Sveinjónsson skoraði sigurmarkið í blálokin, en fyrir leikinn var ljóst að Framarar yrðu að vinna og skora í það minnsta þrjú mörk til að sigra í keppninni, en aukastig var gefið fyrir þriðja markið. Fréttaritari Framsíðunnar horfði þarna á sinn fyrsta fótboltaleik með Fram og fallegt ástarævintýri hófst.

1985, Íslandsmót

Framarar voru spútniklið Íslandsmótsins en Víkingar sáu aldrei til sólar og enduðu á botninum. Framarar unnu Víkinga með tveimur mörkum þeirra Guðmundar Steinssonar og Kristins R. Jónssonar í viðureign sem var algör einstefna. Til að nudda salti í sárin fékk

Friðrik Friðriksson markvörður Fram gult spjald fyrir að bregða sér á salernið í miðjum leik.

1991, Íslandsmót

Hinn eiginlegi úrslitaleikur Íslandsmótsins var viðureign Fram og Víkinga í þriðju síðustu umferð. Víkingar unnu 0:2 og tryggðu sér þar með forystu sem dugði allt til loka. Leiksins var þó helst minnst fyrir ljótt samstuð Birkis Kristinssonar og gamla Framarans Guðmundar Steinssonar. Á meðan framherjinn var borinn af velli, tók Birkir eftir því að einn takkinn undan skónum væri horfinn. Hann fannst síðar í hnénu á Gumma Steins.

1996, Íslandsmót – B-deild

Framarar áttu stutta viðdvöl í 2. deild sumarið 1996. Liðið skoraði 55 mörk í leikjunum átján og átti tvo markahæstu leikmennina, þá Þorbjörn Atla Sveinsson og varnarjaxlinn Ágúst Ólafsson. Þeir skoruðu hvor sín tvö mörkin í 7:0 stórsigri á Víkingum á Valbjarnarvelli í fjórtándu umferð. Hólmsteinn Jónasson skoraði einnig í tvígang og Ásgeir Halldórsson einu sinni.

1999, Íslandsmót

Framarar lentu í bullandi fallbaráttu haustið 1999 og urðu að vinna botnlið Víkinga í lokaumferðinni. Anton Björn Markússon og Marcel Oerlemans höfðu tryggt Frömurum 2:1 forystu, en jöfnunarmark frá poppstjörnunni Bjarna Hall þýddi að Fram var á leiðinni niður… allt þar til Anton Björn bætti við öðru marki sínu í leiknum (og á tímabilinu) á 87. mínútu. Þess í stað féllu Valsmenn úr efstu deild í fyrsta sinn í sögunni.

2004, Íslandsmót

Fram byrjaði Íslandsmótið 2004 með látum undir stjórn nýs þjálfara, hins sérlundaða Rúmena Ion Geolgau. Víkingar urðu fórnarlömbin í fyrsta leik á Laugardalsvelli, 3:0 þar sem Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson, Færeyingurinn Fróði Benjaminssen og Andri Fannar Ottósson skoruð hver sitt markið. Síðar hallaði verulega undan fæti og Fram hélt sér uppi á markamun í lokaumferðinni á kostnað Víkinga sem misstu unnin leik gegn Grindavík niður í jafntefli á lokamínútunum.

2011, Íslandsmót

Það var allt í skrúfunni hjá Fram um mitt sumar 2011 og liðið bara með þrjú stig og án sigurs eftir tíu umferðir. Í elleftu umferð mætti Fram í Víkina og nánast dvergvaxinn skoskur leikmaður, Steven Lennon, lék sinn fyrsta leik og skoraði eina markið í 0:1 sigri eftir sendingur frá Arnari Gunnlaugssyni. Þeir Lennon og Arnar áttu báðir eftir að skora í seinni leik liðanna, þar sem Fram vann 2:1 og hélt sér naumlega í deildinni. Víkingar enduðu á botninum.

2022, Íslandsmót

Það var markasúpa í Dal draumanna í seinni leik Fram og Víkinga sumarið 2022. Gestirnir leiddu, 2:3 allt þar til fimm mínútur voru eftir og Brynjar Gauti Guðjónsson skoraði úr frákasti eftir að skalli frá Guðmundi Magnússyni var naumlega varinn. Nokkuð langt var um liðið frá því að Fram og Víkingur léku síðast í sömu deil.

2023, Reykjavíkurmót

Framarar unnu þá næstelstu og næstfrægustu í febrúarbyrjun 2023 með 4:1 stórsigri á Víkingum í úrslitaleik í Víkinni. Magnús Ingi skoraði tvívegis og þeir Tryggvi Snær og Aron Snær sitt markið hvor í leik sem fór fram í talsverðri snjókomu. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var stóryrtur að leik loknum og talaði um að úrslitin væru áfall og lið hans væri greinilega miklu lakara en talið hefði verið.

2025, Íslandsmót

Framarar jöfnuðu í tvígang gegn Íslandsmeistaraefnum Víkinga í 16. umferð Íslandsmótsins. Jakob Byström skoraði 1:1 eftir góðan undirbúning frá Kennie Chopart undir lok fyrri hálfleiks og Daninn dæmalausi tryggði svo 2:2 jafntefli með aukaspyrnuskoti af tuttugu metra færi í hornið niðri í lokaspyrnu leiksins.

Stefán Pálsson

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!