fbpx
Mfl.kv.

Kjúklingaleggir

„Sælt er sameiginlegt skipbrot“, sagði Ragnheiður Torfadóttir latínukennari fréttaritara Framsíðunnar einhverju sinni þegar í ljós kom að enginn í fornmáladeildarbekknum hafði lært heima og gat svarað einföldustu spurningum um texta dagsins. Þetta er frábært spakmæli og þrungið sannleika. Áföll og vonbrigði eru mjög hópeflandi – svo fremi að allir verði fyrir barðinu á þeim!

Skýjabakkar og hellidemba rústuðu upplifun þjóðarinnar  af sólmyrkvanum. Landsmenn urðu að skoða hann í staðinn á netinu og prísa sig sæla fyrir að vera þó amk ekki erlendir túristar sem tekið hefðu út viðbótarlífeyrissparnaðinn til að leigja íbúðarholu á Airbnb á okurverði. Fréttaritarinn fylgdist með himnaguðunum fikta í dimmernum í fáeinar mínútur úti í garði við blokkina sína í Eskihlíð og fór svo inn og kveikti á ofninum. Það voru kjúklingarleggir, franskar og heimahrærð kokteilsósa í matinn. Leggirnir fengu að bakast í ofninum þar til síðasti mögulegi salmonellugerillinn hafði gefið upp öndina. Það tók langan tíma. Raunar svo langan tíma að fyrri hálfleikurinn hjá Fram og FH var nánast búinn þegar stigið var upp frá borðum.

Fréttaritarinn er maður sem getur múltítaskað. Hann kann að ofnbaka franskar, raða á borð og fylgjast með fótbolta á textavarpinu á sama tíma. Þegar leikar stóðu hvað hæst gat hann meira að segja látið útsendinguna á Sýn malla í fartölvunni!

Það voru smábreytingar á liðinu frá síðustu leikjum. Harpa var utan hóps en Júlía kom í staðinn inn í miðvarðarþrenninguna ásamt Emmu go Gilmore. Orkus vitaskuld í markinu. Brookelynn Entz var líka fjarri góðu gamni en Hlín Heiðarsdóttir kom inn í byrjunarliðið í fyrsta sinn. Katrín var á hinum kantinum. Una Rós, Hildur og Sara Svanhildur á miðjunni og Taylor frammi. Varfærin uppstilling gegn sterkum gestum og athygli vakti að sjá Öldu ekki í byrjunarliði. Allt varðandi hina fínni þætti þessarar uppstillingar er birt án ábyrgðar enda fréttaritarinn sauður og með hina heilaselluna upptekna við að hræra út kokteilsósu.

Fljótlega varð ljóst að hér áttust við tvö lið sem hentar betur að sækja en verjast. Gestirnir í FH, á toppi deildarinnar og leikið allra liða best í sumar, voru með yfirhöndina mestallan fyrri hálfleikinn en okkar konur voru þó alltaf ógnandi með skyndisóknum. Þannig fékk Fram fyrsta dauðafærið í leiknum strax á fjórðu mínútu en fáeinum sekúndum síðar lá boltinn í markinu hinu megin, 0:1.

Fram varð fyrir áfalli eftir tæplega hálftíma leik þegar Una Rós þurfti að fara af velli eftir eitthvað hnjask. Alda kom inná og átti eftir að láta vel til sín taka. Dauðafæri Framkvenna eftir hornspyrnu fór naumlega framhjá og líkt og fyrr í hálfleiknum refsaði FH með marki beint í andlitið, staðan orðin 0:2. Eitt aðalsmerki liðsins okkar í sumar hefur hins vegar verið að það gefst aldrei upp. Margoft höfum við lent undir, en náð að vinna okkur aftur inn í leiki og það sem eftir leið hálfleiksins átti Fram tvær prýðilegar sóknir – og loks þá þriðju: hornspyrnu frá Söru Svanhildi sem Alda stökk uppí og stangaði inn, 1:2 og útlitið orðið mun vænlegra fyrir fréttaritarann sem brunaði í eystribyggðir á bláa metanfáknum, nýkomnum úr smurningu.

Fréttaritarinn smeygði sér hálfskömmustulegur í gegnum miðavörsluna og tók strikið upp á næstu hæð. Hálfblautur eftir sólmyrkvaglápið var mun þægilegra að horfa á leikinn í gegnum gler ásamt þeim Auði Geirs og Inga pabba Júlíu. Þar var ekki töluð vitleysan.

Gestirnir byrjuðu seinni hálfleikinn mun betur og spiluðu Framvörnina upp úr skónum á 51. mínútu til að breyta stöðunni í 1:3. Undir ýmsum kringumstæðum hefði þetta mark dugað til að steindrepa leikinn, en það sem við tók var hörkufjör og dúndrandi sóknarleikur á báða bóga. Katrín átti gott skot á 55. mínútu sem Blikamarkvörðurinn mátti hafa vig alla við að verja. Skömmu síðar komst Alda í prýðilegt skotfæri, en skaut í samherja. Gestirnir voru þó með undirtökin og skoruðu alltof auðvelt fjórða mark á 58. mínútu. Vorum við að fara að horfa upp á slátrun? Þjálfari FH var amk viss um að björninn væri unninn og gerði beint eftir markið fjórfalda skiptingu, væntanlega til að hvíla lykilmenn. Skömmu síðar gerði Fram breytingu þar sem Freyja Dís kom inná fyrir Katrínu.

Á sjötugustu mínútu juku Hafnfirðingar forystuna í 1:5, en fimm mínútum fyrr hafði Fram þó komist í mögulega besta færi leiksins þar sem Sara skaut að marki og Taylor sópaði frákastinu yfir nánast á marklínu. Strax á 72. mínútu náði Fram að klóra í bakkann. Freyja Dís átti þá sendingu fyrir markið sem hraut væntanlega af Söru Svanhildi og í netið. Annan leikinn í röð var markatalan 2:5 komin upp í Dal draumanna.

Tíu mínútum síðar átti Freyja sína aðra stöðsendingu í leiknum, að þessu sinni fyrir Öldu sem skoraði aftur með skalla, staðan orðin 3:5. Handboltatölur um miðjan ágúst! Hafi einhverjar vonir kviknað um fræga endurkomu slokknuðu þær þegar FH skoraði sannkallað útsölumark tveimur mínútum síðar og staðan orðin 3:6. Framkonur létu þó ekki hugfallast og á þeim fáu mínútum sem eftir lifðu leiks sköpuðu þær sér tvö dauðafæri áður en Taylor kom sér á blað á lokamínútu venjulegs leiktíma með skoti af örstuttu færi eftir að boltinn hafði smollið í slánni eftir prýðilegt skot, 4:6. Furðulegar tölur en úrslit sem eru þannig að við getum borið höfuðið hátt. Næst er útileikur gegn skástrikinu þar sem færi gefst til að hefna harma úr bikarundanúrslitunum. Maður leiksins Sara Svanhildur.

Stefán Pálsson

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!