fbpx
FRAM - Þróttur kv.

Þóra amma

Fréttaritari Framsíðunnar kallar ekki allt ömmu sína. Raunar hefur hann bara kallað tvær manneskjur ömmu sína: Önnu ömmu og Þóru ömmu. Þær eru báðar löngu látnar. Það var einmitt heima hjá Þóru ömmu og Haraldi afa sem fréttaritarinn gerðist Framari. Hann mætti á völlinn sem barn og síðar ungur maður í fylgd með gamla manninum. Þegar komið var heim á Neshagann að leik loknum – ansi oft með skottið á milli lappanna – beið amma heima, búin að grafa upp úrslitin og ýmist hrósaði okkur eða stráði salti í sárin með athugasemdum á borð við: „Jæja, Framararnir töpuðu eina ferðina enn. Og það á lokamínútunni!“

Þóra amma hefði orðið hundrað ára um þessa helgi og því var slegið upp heljarmikilli veislu ættingja og afkomenda í Mosfellsbænum. Þar voru ræður, ljósmyndatökur og nóg af flatbrauði með hangikjöti. Fyrir vikið gat fréttaritarinn ekki verið á öðrum stað á sama tíma: á Lambhagavellinum að horfa á Framkonur taka á móti skástriki Eyjafjarðar.

Ýmsir hafa spurt sig þeirrar spurningar: hversu stóran hluta leiks þarf fréttaritari að hafa horft á til að það réttlæti að skrifa leikskýrslu? Svarið er fengið. Það er nóg að sjá zigga-zagga.

Lokamínútur leiksins voru að klárast á meðan fréttaritarinn ók fyrir Úlfarsfellið með fjölskylduna í bílnum. Lokaflautið hefur líklega verið rétt eftir að komið var framhjá Bauhaus. Með því að beygja upp í hverfið á hringtorginu og spretta út úr bílnum með vélina mallandi fyrir framan bókasafnið náði lafmóður pistlahöfundurinn að skjótast inn á völlinn undir hinu sígilda sigurhrópi okkar. 3:2 sigur var staðreynd!

Við innganginn stóð Ívar Guðjónsson sem gat gefið örstutta umsögn. Framliðið, sagði hann, hafði haft næg tækifæri til að auka forystuna enn frekar, en vissulega hefði legið ansi mikið á okkar konum síðasta stundarfjórðunginn! Lestur á vefmiðlum átti svo eftir að varpa upp skýrari mynd að gangi mála.

Tvær breytingar voru gerðar á liðinu frá jafnteflinu á móti Val á Hlíðarenda í síðustu umferð. Katrín kom inná fyrir Júlíu Margréti og Freyja Dís fyrir Söru Svanhildi sem var utan hóps og þá væntanlega meidd. Liðsuppstillingin hefur væntanlega verið svipuð og í bikarleiknum gegn Skaganum á dögunum.

Taugarnar hafa væntanlega verið þandar í byrjun. Bæði lið án sigurs í deildinni og nauðsynlegt að fara að hefja stigasöfnun – einkum úr því að báðir nýliðarnir virðast ætla að vera dónalega góðir í sumar. Það vantaði heldur ekki mörkin framanaf. Gestirnir komust yfir strax á sjöundu mínútu en innan fjögurra mínútna voru okkar konur búnar að svara með tveimur mörkum. Fyrst Alda og svo Hamlett – vafalítið hvoru öðru flottara. Enn liðu nokkrar mínútur uns gestirnir náðu að jafna. 2:2 eftir innan við tuttugu mínútur. Bæði lið fengu færi til að bæta við en mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik. Áhorfendur nældu sér í ljúffenga Framborgara en fréttaritarinn fékk sér kaffi og aðra flatbrauðssneið í Mosó.

Seinni hálfleikur var þriggja mínútna gamall þegar Alda bætti við öðru marki sínu og forystan orðin 3:2. Júlía Margrét kom inná fyrir Freyju Dís í fyrstu skiptingu Framliðsins eftir tæpa klukkustund og tvær skiptingar til viðbótar litu dagsins ljós undir lokin á meðan bláklæddar biðu eftir að flautað yrði til leiksloka. Dýrmætur sigur og innilegur ziggi-zaggi í lokinn. Um það getur fréttaritarinn þó vitnað þótt hann hafi ekki séð neitt annað!

Stefán Pálsson

 

Share this post

Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!