fbpx

Fótbolti - Æfingagjöld

FlokkurÁrgjald 2026Vor- og sumargjald (jan-ágúst)
2. flokkur f. 07.148.500.-132.000-
2. flokkur f. 08 og 09193.500.-132.000-
3. flokkur f. 10 og 11193.500.-132.000-
4. flokkur f. 12 og 13193.500.-132.000-
5. flokkur f. 14 og 15176.000.-121.000-
6. flokkur f. 16 og 17164.000.-113.000-
7. flokkur f. 18 og 19160.500.-110.000-
 8. flokkur f. 2020 >  87.000-29.000- (Vorgjald janúar-apríl)
  • Foreldrar skrá börn sín sjálfir í gegnum skráningarkerfi félagsins og skal skráningu vera lokið fyrir 10. janúar 2026.
  • Hafi foreldrar ekki gengið frá skráningu fyrir 10. janúar verður ekki hægt að heimila börnum þeirra þátttöku á æfingum eftir þann tíma fyrr en skráningu er lokið.
  • Miða skal við að æfingagjöld séu greidd í upphafi tímabils.  Mikilvægt er að hafa samband við skrifstofu ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkandans.
  • Hafi æfingagjöld ekki verið greidd 10. febrúar 2026 verður sendur greiðsluseðill á forráðamann iðkanda.
  • Veittur er 20% systkinaafsláttur innan deildar og kemur sá afsláttur af gjaldi yngra barns.
  • Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur iðkandans fer á.  Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
  • Ef þátttakandi hættir æfingum á  tímabilinu eru gjöldin ekki endurgreidd nema vegna búferlaflutninga og /eða veikinda/meiðsla.  Hafa skal samband við skrifstofu félagsins sem afgreiðir umsóknir í samráði við stjórn deildarinnar.
  • Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með Frístundakorti Reykjavíkurborgar.
  • Hægt er að dreifa greiðslum í skráningarkerfinu í allt að 8 mánuði (kort eða greiðsluseðlar).  Eins verður alltaf hægt að semja um greiðslur ef svo ber undir.
  • Hægt er að nýta frístundastyrkinn frá Reykjavíkurborg en hann er kr. 75.000- fyrir árið 2026.  Ath. að ef nýta á frístundastyrk er nú farið í gegnum https://www.sportabler.com/shop/fram/fotbolti með rafrænum skilríkjum eða Íslykli og frístundastyrknum ráðstafað þar í gegn.


Persónuverd

Forráðamenn viðurkenna með greiðslu æfingagjalda að veita KSÍ og viðkomandi félagi rétt til nýtingar á myndum eða myndböndum af iðkanda/barni sem gætu verið persónugreinanlegar. Sem dæmi, en ekki tæmandi talið, í yfirlitsmyndum eða myndböndum yfir æfingasvæði, efni sem tekið er upp á æfingatímum á meðan æfingum stendur, viðtöl við iðkendur, beinar útsendingar á vef félagsins, frá mótum og keppnum á vegum félags/sambands.

Forráðamenn gera sér grein fyrir því að yfirlitsmyndir og myndbönd af æfinga/keppnissvæði geta verið notuð í auglýsingaskyni og birst á miðlum KSÍ eða félags. KSÍ eða félag mun þó ávallt leita samþykkis iðkanda eða forráðamanna ef um er að ræða nærmyndir eða annað persónulegra/-greinanlegra auglýsingaefni.

Knattspyrnudeild FRAM kt. 600212-1680, reikn. 0114-26-8136

Hægt er að ganga frá skráningu og greiðslu með því að smella hér

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!