Fram heldur sitt árlega herrakvöld föstudaginn, 14. nóvember í félagsheimili Fram. Þetta er kvöld sem enginn vill missa af. Frábær skemmtun og ljúffengur matur ásamt skemmtun.
Guðmundur B. Ólafsson mun stýra veislunni af sinni alkunnu snilld. Gestir fá einnig að njóta óborganlegs húmors frá einum fremsta skemmtikrafti landsins, Dóra DNA. Enginn annar en Stefán Pálsson er ræðumaður kvöldsins og sjálfur Siggi Tomm sér um málverkauppboðið fræga. Steikarhlaðborðið verður í höndum Lúx veitinga. Því er von skemmtilegu kvöldi.
Í fyrra komust færri að en vildi. Tryggið ykkur því miða í tíma!
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00
Miða og borðapantanir á toggi@fram.is