Íþróttamaður Fram 2025 verður útnefndur sunnudaginn 14. desember kl. 12:30
Á 100 ára afmæli FRAM 2008 var ákveðið að taka upp þann sið að kjósa „Íþróttamann/konu ársins“ – aðila sem félagið telur að hafi náð afburða árangri í íþrótt sinni ásamt því að vera fyrirmynd FRAM innan vallar sem utan.
Tilkynnt verður um valið á “Íþróttamanni FRAM 2025″ í hófi sem verður haldið í veislusal FRAM,sunnudaginn 14. des.
kl. 12:30 að Úlfarsbraut 126, Íþróttamiðstöð Fram.
Þeir FRAMarar sem tilnefndir eru sem íþróttakonur/menn Fram árið 2025 eru:
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín Handknattleiksdeild Fram
Ásdís Guðnadóttir Almenningsíþróttadeild Fram
Bjarki Kjartansson Taekwondodeild Fram
Hafdís Lára Sigurðardóttir Blakdeild Fram
Hörður Birgisson Blakdeild Fram
Jenný María Jóhannsdóttir Taekwondodeild Fram
Jón Erik Sigurðsson Skíðadeild Fram
María Ingimundardóttir Almenningsíþróttadeild Fram
Reynir Þór Stefánsson Handknattleiksdeild Fram
Símon Tibbling Knattspyrnudeild Fram
Una Rós Unnarsdóttir Knattspyrnudeild Fram
Knattspyrnufélagið Fram óskar öllu þessu glæsilega íþróttafólki til hamingju með tilnefninguna.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir og hvetjum við Framara til að mæta
Knattspyrnufélagið FRAM