Það gleður okkur að tilkynna að Knattspyrnufélagið Fram og Ölgerðin hafa undirritað áframhaldandi samstarfssamning sem gildir til ársins 2028. Samningurinn felur í sér að Ölgerðin verður áfram einn af aðalstyrktaraðilum félagsins á komandi árum.
Ölgerðin er eitt stærsta framleiðslu- og dreifingarfyrirtæki landsins á sviði drykkjavara. Á meðal þekktra drykkja eru Pepsi, Kristall, Gatorade og Collab. Fyrirtækið hefur um áratugaskeið verið virkur bakhjarl íslensks íþróttalífs og styður við fjölmörg íþróttafélög um land allt.
Samstarf Fram og Ölgerðarinnar styður við starfsemi félagsins á breiðum grunni og hjálpar til við að skapa enn betri aðstæður fyrir félagið til að vaxa.
Knattspyrnufélagið Fram þakkar Ölgerðinni fyrir traustið og hlakkar til áframhaldandi samstarfs á komandi árum.
Þorgrímur Smári Ólafsson (f.h. Fram) og Bríet Björk Sigurðardóttir (f.h. Ölgerðarinnar) skrifuðu undir nýjan samning í dag, föstudag.