fbpx
Coverphoto - Handbolti (5)

Tveir nýjir þjálfarar til liðs við Blakdeild Fram 

Það er með mikilli ánægju sem við kynnum tvo nýja þjálfara fyrir komandi tímabil, þau Sergej Diatlovic og Daníelu Grétarsdóttur, sem hafa ákveðið að ganga til liðs við Fram og sinna þjálfun kvennaliða og ungmenna. 

Sergei á að baki langan og farsælan feril sem leikmaður og þjálfari. Hann lék sem miðjumaður og hefur um árabil spilað með t.d. HK og Fylki. Sergej býr yfir víðtækri reynslu af þjálfun og kemur með mikla þekkingu, metnað og fagmennsku inn í starf félagsins. 

Daníela kemur úr mikilli blak fjölskyldu úr Mosfellsbænum. Hún hefur æft blak í rúm 16 ár og hefur jafnframt öðlast dýrmæta reynslu sem þjálfari á síðustu árum. Daníela hefur tekið þátt í yngri landsliðum Íslands og verið leikmaður A- landsliðsins. Síðustu tvö ár hefur hún starfað sem aðstoðarþjálfari U19 landsliðs kvenna. 

Jafnframt er ánægjulegt að Þorgils Bjarni mun áfram þjálfa karlalið Fram. Með komu Sergej og Daníelu bætast þau í öflugt þjálfarateymi sem mun leiða áframhaldandi uppbyggingu blakstarfsins á komandi árum.

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!