fbpx
Páll ráðinn banner

Páll Árnason ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Fram


Knattspyrnudeild og barna- og unglingaráð Fram hafa ráðið Pál Árnason sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu. Ráðningin er liður í breytingum á faglegri forystu knattspyrnudeildarinnar, þar sem lögð er aukin áhersla á skýra stefnu, afreksstarf og áframhaldandi uppbyggingu yngri flokka.

Páll hefur störf hjá Fram 1. september 2026. Meginverkefni hans verða að leiða mótun, innleiðingu og eftirfylgni stefnu fyrir yngri flokka og afreksstarf félagsins. Hann mun vinna náið með yfirþjálfara yngri flokka, stjórn knattspyrnudeildar, barna- og unglingaráði og þjálfurum meistaraflokka að því að skapa skýra heildarsýn og sterkan faglegan grunn fyrir knattspyrnustarfið.

Auður Geirsdóttir, formaður barna- og unglingaráðs Fram:

„Við erum mjög ánægð með að fá Pál til liðs við okkur. Hann kemur með mikla reynslu og þekkingu sem mun nýtast okkur vel í þeirri vegferð sem fram undan er. Við höfum metnað til að taka næsta skref í faglegri uppbyggingu yngri flokka, skapa skýrari stefnu og styrkja enn frekar umgjörðina í kringum afreksstarfið. Við teljum Pál rétta aðilann til að leiða þá vinnu með okkur.“

Guðmundur Torfason, formaður knattspyrnudeildar Fram:

„Ráðning Páls er mikilvægt skref í þeirri uppbyggingu sem við viljum sjá hjá knattspyrnudeild Fram til lengri tíma. Markmiðið er að efla faglega forystu, skapa meiri samfellu í starfinu og tryggja skýra sýn á þróun leikmanna frá yngstu flokkum og áfram. Við erum mjög ánægð með að fá Pál inn í félagið og hlökkum til samstarfsins.“

Við bjóðum Pál hjartanlega velkominn til starfa hjá Fram og hlökkum til samstarfsins.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!