fbpx

Framtille - Undirbúningur fyrir Partille Cup

Framtille er nýtt og spennandi handboltamót á vegum Fram sem haldið verður 6. júní í Úlfarsárdal. Mótið
er sérstaklega hugsað sem öflugur og skemmtilegur undirbúningur fyrir þau lið sem stefna á þátttöku í
Partille Cup síðar í sumar en að sjálfsögðu er öllum frjálst að taka þátt.

Spilað utandyra á gervigrasi
Leikið verður utandyra á gervigrasi, sem skapar einstaka stemningu og líkir eftir aðstæðum sem mörg
lið upplifa á stórum alþjóðlegum mótum. Að spila úti krefst annars konar aðlögunar og er frábær æfing
fyrir lið sem vilja mæta vel undirbúin til leiks erlendis.

Keppnisstemning og liðsheild
Framtille leggur áherslu á góða keppnisstemningu og vandaða framkvæmd. Mótið býður upp á:
● Góðan leikjahraða og marga leiki
● Skemmtilega og jákvæða mótstemningu
● Sterka liðsheild og dýrmæta keppnisreynslu
● Undirbúning bæði innan vallar og utan

Aldursflokkar
Mótið er hugsað fyrir leikmenn sem eru í 5. Og 4. Flokki karla og kvenna. Gert er ráð fyrir að spilað verði í
deildum U16 kk/kvk og U14 kk/kvk. Framtille áskilur sér rétt til að fjölga eða fækka aldurflokkum eftir að
skráningu er lokið.

Liðagjald og mótsgjöld
Liðagjald fyrir hvert lið (ekki félag) er 10.000 krónur.
Liðagjald greiðist um leið og lið eru skráð til leiks og skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur
borist.
● Skráning hefst 20. febrúar,
○ Hægt að skrá sig í gegnu form hér að neðan eða með pósti á runarkara@fram.is
○ Taka þarf fram upplýsingar um fjölda liða og aldursflokk liðs ásamt nafni félags.
● Liðagjald fæst ekki endurgreitt
● Liðagjald dregst ekki frá mótsgjöldum

Mótsgjald er 2.500 krónur á hvern leikmann.
Mótsgjald verður innheimt að móti loknu.

Mótið er frábært tækifæri fyrir leikmenn og þjálfara til að slípa leikskipulagið, efla samvinnu og byggja upp
sjálfstraust fyrir sumarið.

Við hlökkum til að taka á móti liðum í Úlfarsárdal 6. júní – sjáumst á Framtille! �

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!