Stella Sigurðardóttir var í kvöld var valinn íþróttamaður FRAM 2012.
Þetta er í annað skiptið sem Stella er valinn íþróttamaður FRAM og er sannalega vel að því kominn.
Stella Sigurðardóttir var valinn besti leikmaður N1 deildar kvenna veturinn 2011-2012, besti vinstri skytta N1 deild kvenna veturinn 2011-2012, hlaut Sigríðarbikarinn 2011-2012 sem mikilvægasti leikmaður Íslandsmótsins ásamt því að vera valinn í lið ársins í N1 deild kvenna.
Fram spilaði til úrslita um íslandsmeistaratitilinn en tapaði naumlega í 5 viðureignum þar sem Stella var yfirburða leikmaður í liðinu.
Stella hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu en liðið spilaði á Evrópumótinu núna í desember.
Stella er góð fyrirmynd, þjálfar yngiflokka Fram þar sem hún nýtur virðingar bæði sem leikmaður og leiðtogi.
Stella hefur sýnt prúðmennsku innan vallar sem utan og er Knattspyrnufélaginu Fram til sóma í hvívetna.
Knattspyrnufélagið FRAM óskar Stellu innilega til hamingju með titilinn