fbpx
Skokkhópur vefur

Skokk og gönguhópur FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal, vertu með

skokkhópur FRAMSkokk- og gönguhópur FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal er opinn öllum sem vilja stunda holla hreyfingu
í góðum félagsskap og eru byrjendur ávalt velkomnir.
 

Æfingar:
Æfingar eru alls fjórum sinnum í viku, þ.e. mánudaga eru liðleika, jafnvægis og styrktaræfingar í Ingunnarskóla, þriðjudaga eru léttar göngu, skokk og hlaupaæfingar (endurheimt eftir mánudagsæfingar) og fimmtudaga eru styrktaræfingar úti, sprettir og ýmislegt fleira óvænt, og á laugardögum eru venjulega farnar lengri vegalengdir en hina dagana, allt eftir getu, áhuga og aðstæðum. Einu sinni í mánuði skellum við okkur í bakaríið í Grafarholti eða annað kaffihús og eigum góða stund saman eftir æfingu.

Þjálfari: Jónína Björk Erlingsdóttir  S: 666 6789

Fésbókin:
Hópurinn er með fésbókarsíðu (Skokkhópur FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal) þar sem birtar eru fréttir af hópnum, myndir frá æfingum og upplýsingar um skipulag æfinga. Öllum er velkomið að setja inn færslur á síðuna og/eða bjóða öðrum með sér í göngu, skokk eða hlaup ef fólk kemst ekki á skipulögðum tíma.

Hvar á að mæta? Hittumst við húsið í Leirdalnum nema annað sé tekið fram inná fésbókarsíðunni.

Hlökkum til að sjá þig

Almenningsíþróttadeild Fram 

 Skokk- og gönguhópur FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal

Mánudagur Þriðjudagur Fimmtudagur Laugardagur
19:30 – 20:30

Mæting í
Ingunnarskóla

18:00 – 19:00

Mæting við
Leirdalshúsið

18:00 – 19:00

Mæting við
Leirdalshúsið

9:00 – 10:30 ca

Mæting við
Leirdalshúsið  

Facebook:  Skokkhópur FRAM Grafarholti og Úlfarsárdal                      www.fram.is

Skrifstofa Fram Grafarholti s: 587-8800          Fram Safamýri s: 533-5600

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0