Jökull Steinn Ólafsson sem er tvítugur kantmaður hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Jökull er uppalinn í Fram en hann var valinn besti leikmaður 2. flokks 2013. Um mitt sumar 2014 var hann lánaður til KF í 2. deildinni og lék hann 11 leiki með félaginu. Fram bindur miklar vonir við Jökul Stein og fagnar því samningnum við leikmanninn.