fbpx
Getraunaleikur Fram...auglýsing

Getraunaleikur FRAM hefst á laugardag

Getraunaleikur Fram hefst laugardaginn 20. janúar – nú líka getraunakaffi í Úlfarsárdalnum

Getraunakaffi hefst í Framheimilinu í Úlfarsárdal laugardaginn 20. janúar milli kl. 10:00-12:00. Getraunakaffið í Safamýrinni verður að sjálfsögðu á sínum stað líka.

Nýr getraunaleikur fer í gang. Allir velkomnir! Hægt að skrá sig með því að senda póst á 1x2fram@gmail.com eða með því að mæta á staðinn í Úlfarsárdal eða í Safamýri.

Reglur getraunaleiksins:
1. Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi Fram. Tveir einstaklingar mynda hvern hóp og gefa honum eitthvað gott nafn.
2. Spilað verður í einum riðli í 10 vikur eða alla laugardagsmorgna frá 20. janúar til og með 24. mars og gilda 8 bestu vikurnar.
Ef fleiri en einn hópur er jafn eftir 10 vikur þá fer sá hópur áfram sem er með fleiri rétta samtals úr síðustu þremur umferðunum. Sé ennþá jafnt þá verður varpað hlutkesti.
Tíu efstu hóparnir fara svo áfram í úrslitakeppni þar sem allir byrja á núlli. Úrslitakeppnin fer fram leikvikurnar 7. 14. og 21. apríl. Allar þrjár umferðirnar gilda og sá hópur sem verður með flesta leiki rétta sigrar. Ef tveir hópar eru jafnir að lokinni úrslitakeppninni sigrar sá hópur sem varð ofar í riðlakeppninni.
3. Hver hópur sendir inn 1-2 seðla í hverri leikviku. Betri seðillinn gildir. Hver seðill skal innihalda 7 leiki með einu merki og 6 leiki með tvítryggingu. Skylda er að kaupa seðilinn til þess að hann gildi í leiknum (kostar kr. 832-.)
4. Seðlar skulu vera komnir til umsjónarmanna getraunastarfs Fram fyrir kl. 12:00. Tekið er á móti seðlunum á laugardögum í Framheimilinu í Úlfarsárdal og í íþróttahúsi Fram í Safamýri frá kl. 10:00 til 12:00 þar sem boðið verður upp á getraunakaffi. Einnig er hægt að senda seðlana á 1x2fram@gmail.com.
5. Gleymi hópur að senda inn seðil þá fær sá hópur lægsta skor þeirrar viku í riðlinum.
6. Þátttökugjald er kr. 5.000- á hóp. Greiðist inn á reikning 0114-26-008136 kt. 600212-1680 (kvittun með nafni hóps á 1x2fram@gmail.com). Einnig er hægt að greiða með korti í Úlfarsárdal eða Safamýri.

Glæsilegir vinningar!

Sigurvegararnir hljóta að launum ferð með TransAtlanticSport á leik í enska boltanum 2018-2019.
Öll lið sem komast í úrslitakeppnina fá vinning.

Getraunaleikur FRAM er á Facebook

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!