Við FRAMarar héldum í gær annan súpufund vetrarins. Okkur telst til að það hafi verið tæplega 60 menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu. Súpan í gær mjög góð og með sérstökum vetrar keim.
Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.
Næsti súpufundur verður fimmtudaginn 28. nóvember 2019.
Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu fyrir komuna, fyrir það erum við mjög þakklát og hvað þessi uppákoma heppnast alltaf vel.
Takk fyrir okkur og sjáumst í nóvember.
ÁFRAM FRAM