Guðmundur Helgi Pálsson og Dagur Snær Steingrímsson landsliðsþjálfarar Íslands U16 kvenna hafa valið æfingahóp sem kemur saman til æfinga helgina 7.-9. janúar 2022.
Allar æfingar liðsins fara fram á höfuðborgarsvæðinu, en auk æfinga verður haldið áfram með fyrirlestraröðina “Afreksmaður framtíðar” þar sem yngri landslið Íslands fá fræðslu sem nýtist þeim innan vallar sem utan.
Við Framarar erum stoltir af því að eiga fjóra leikmenn í þessu æfingahópi Íslands en þær sem voru valdar frá Fram að þessu sinni eru:
Dagmar Guðrún Pálsdóttir Fram
Ingunn María Brynjarsdóttir Fram
Matthildur Bjarnadóttir Fram
Sara Rún Gísladóttir Fram
Gangi ykkur vel.
ÁFRAM FRAM