Ágætu Framarar
Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudiski, þetta er níundi veturinn sem við höldum þessum sið og nú erum við á nýjum stað í Úlfarsárdal.
Þriðji súpufundur vetrarins verður á fimmtudaginn 1. des. Það var vel mætt á síðasta súpufund en samt vantaði marga. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman. Verðið verður núna kr. 1000.-
Þriðji fundurinn í súpuröðinni verður fimmtudaginn 1. des. kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Úlfarsárdal.
Athugið að núna verður súpan á fimmtudögum í vetur.
Við hvetjum alla FRAMarar og íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Allir velkomnir.