4. nóvember voru liðin 60 ár síðan Fram var fyrst íslenskra félaga til að taka þátt í Evrópukeppni í flokkaíþróttum. Fram tók þátt í Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik 1962-1963 og lék þá við danska liðið Skovbakken frá Árósum. Þá léku lið aðeins einn leik í fyrstu umferðunum og kom það í hlut Fram að heimsækja Skovbakken.
Á þessum tímamótum verða leikmennirnir sem fóru til Danmerkur, heiðursgestir á leik Fram og ÍBV í kvöld kl. 18 í hinu glæsilega Íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal, þar sem þeir verða kallaðir fram á gólf og hylltir fyrir leikinn.
Allir leikmenn sem tóku þátt í leiknum gegn Skovbakken, eru á lífi nema aðldursforsetinn Hilmar Ólafsson, fyrirliði.
Þátttaka Fram þótti stórvirki og urðu leikmenn Fram að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Skovbakken í Íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelli, en þar var leikvöllur stærri en í Háloglandi í Reykjavík; löglegur keppnisvöllur. Í undirbúningi sínum fóru leikmenn Fram tvisvar í viku til Keflavíkur; rúmlega 120 km leið eftir gamla Krísuvíkurveginum um Vatnleysuströnd og Voga. Einnig var æft í gamla íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda.
Framarar voru svo sannarlega óheppnir að slá ekki Skovbakken út úr keppninni. Danirnir náðu knettinum og að jafna 24:24 þegar tíu sek. voru til leiksloka, með marki úr horni, og í framlengingu skoruðu þeir sigurmarkið þegar 20 sek. voru til leiksloka, 28:27.
Leikur Fram vakti athygli í Danmörku og fékk Framliðið mikið hrós í dönskum blöðum. Sagt var frá því að Danir ættu enga leikmenn sem jöfnuðust á við Guðjón Jónsson og Ingólf Óskarsson, sem skoruðu níu mörk hvor. Þeir voru kallaðir Bi og Fy (Litli og stóri) – Bivognen og Fyrtarnet. Hin mörkin skoruðu Karl G. Benediktsson 4, Sigurður Einarsson 2, Erlingur Kristjánsson 2 og Ágúst Þór Oddgeirsson, eitt.
Danirnir reyndu að taka Guðjón og Ingólf úr umferð, en hættu við það eftir að Ágúst Þór skoraði með miklu þrumuskoti og í næstu sókn gekk markramminn til, þegar skot Ágústar skall á stönginni. Þeir sáu að það þýddi ekkert að taka menn úr umferð, því að sá næsti tæki þá við!
Fram hefði fengið heimaleik
Ef Fram hefði komist áfram hefði liðið leikið gegn norska liðinu IK Fredensborg frá Ósló. Fram hefði ekki þurft að leika þann leik, því að Norðmennirnir voru búnir að gefa það út að þeir myndu draga lið sitt út úr Evrópukeppninni ef þeir þyrftu að fara til Íslands, en Fram hefði fengið heimaleik með sigri á Skovbakken. Norðmenn töldu sig ekki hafa efni á að fara til Íslands.
Skovbakken fagnaði sigri á Fredensborg í Ósló, 10:9, í 16 liða úrslitum. Danska liðið lék tvo leiki gegn sænska liðinu Heim í 8-liða úrslitum; tapaði í Svíþjóð 17:19, en vann í Árósum 21:14 og samanlagt 38:34.
Skovbakken tapaði fyrir Dinamo Búkarest frá Rúmeníu í undanúrslitum samanlagt 22:28 (Heima 12:14 og úti 10:14).
Dukla Prag varð síðan Evrópumeistari með því að vinna Dinamo Búkarest í framlengdum úrslitaleik í París 15:13, eftir að staðan var jöfn eftir venjulegan leiktíma, 13:13.
Söguleg leikskrá og plaggat
Framarar eiga ýmisleg gögn frá leiknum í Árósum, sem Sveinn H. Ragnarsson lisstjóri, hélt til haga. Eins og auglýsingaplaggat, sem er sögulegt. Ýmis gögn um leikinn er í ramma við hliðina á plaggatinu, eins og frásagnir um leikinn í dönskum blöðum, jólakort sem Fram fékk frá Skovbakken. Erlingur Kristjánsson, leikmaður, kom færandi hendi á dögunum, er hann kom með leikskrá leiksins, sem er mikill dýrgripur vegna þess að allir leikmenn, þjálfarar og forráðamenn liðanna rituðu nöfn sín á hana. Leikskránni hefur nú verið komið fyrir í rammanum sem geymir auglýsingaplaggatið. Það var Sveinn sem lét Erling fá leikskránna í veislu eftir leikinn og bað Erling um að sjá um að allir rituðu nöfn sín á skránna, með því að láta hana ganga á milli manna við veisluborðin.
Leikmenn Fram fá í kvöld minni-plaggat af auglýsingunni frá leiknum og ljósrit af forsíðu á leikskránni, ásamt ýmsum upplýsingum.
Þeir leikmennn sem tóku þátt í leiknum voru Ágúst Þór Oddgeirsson, Jón Friðsteinsson, Guðjón Jónsson, Tómas Tómasson, Erlingur Kristjánsson, Ingólfur Óskarsson, Sigurður Einarsson, Karl G. Benediktsson, þjálfari, Hilmar Ólafsson, fyrirliði, Gylfi Jóhannesson, 17 ára nýliði, og markverðirnir Atli Marínósson, Þorgeir Lúðvíksson og Sigurjón Þórarinsson.
Liðsstjóri var Sveinn H. Ragnarsson, fararstjórar voru þeir Birgir Lúðvíksson og Hannes Þ. Sigurðsson.
Myndir frá keppnisárinu 1962-1963, Jóhann G. Kristinsson https://frammyndir.123.is/photoalbums/296496/