fbpx
Gríptu kemur út 13. mars (22)

Lambhagi tekur slaginn með Fram!

Það er sönn ánægja að tilkynna stuðningsmönnum Fram, íbúum hverfisins og áhugafólki um íþróttir almennt að Knattspyrnufélagið Fram og Lambhagi hafa stækkað samstarf sitt til næstu þriggja ára. Félagið leitaði til fyrirtækisins með nafnagiftir keppnisvalla félagsins í huga í vetur. Sem frumbyggjar í hverfinu, tók Lambhagi vel í þá hugmynd og úr varð. Þannig munu keppnisvöllur Fram í handbolta heita Lambhagahöllin og keppnisvöllur Fram í fótbolta heita Lambhagavöllurinn næstu þrjú árin í hið minnsta.

Lambhagi var stofnað 1979 af Hafbergi Þórissyni garðyrkjumanni og er fyrirtækið stærsti framleiðandi og seljandi á fersku salati og kryddjurtum í landinu. Lambhagi hefur verið verðlaunað fyrir framsækna nálgun sína og gæðastaðla við ræktunaraðferðir. Fyrirtækið styðst við nýjustu tækni í sjálfbærri, vistvænni ræktun.

Hafberg Þórisson garðyrkjumaður, stofnandi Lambhaga og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir formaður Fram undirrituðu samning þess efnis í gær.

Ella Sigga var himinlifandi ánægð með samninginn
„Við erum virkilega ánægð með samstarfið við Lambhaga, tvö rótgróin félög og nágrannar í hverfinu. Lambhagi framleiðir heilsusamlega vöru sem rímar einstakleg vel við það sem við stöndum fyrir hjá Fram. Við erum þakklát fyrir stuðninginn og hlökkum til samstarfsins.“

Á fundinum nýtti Hafberg einnig tækifærið til tilkynna mikilvæg skref í baráttunni við verðbólguna.

Lambhagi gróðrarstöð hefur tekið þá ákvörðun að halda sama verði á framleiðsluvörum fyrirtækisins í ár. Þannig vill Lambhagi sýna samstöðu með öðrum aðilum á markaði sem hafa það að leiðarljósi að styðja við íslenska hagkerfið og stuðla að hjöðnun verðbólgunnar á óvissutímum“

Þökkum Kidda Trausta fyrir myndirnar!

Sjáumst á Lambhagavellinum/Lambhagahöllinni Framarar!

Hjónin Hauður og Hafberg ásamt Ellu Siggu
Hafberg átti fyrstu sneiðina!
Hafberg fór létta yfir sögu Lambhaga og svæðisins.
Sjáumst á/í Lambhagavellinum/Lambhagahöllinni!

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!