Ágætu Framarar
Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudiski, þetta er níundi veturinn sem við höldum þessum sið og nú erum við á nýjum stað í Úlfarsárdal.
Annar súpufundur vetrarins verður á fimmtudaginn 29. feb. Það var vel mætt á síðasta súpufund en samt vantaði marga, þurfum að bæta í hópinn. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðið verður núna kr. 1000.-
Annar fundurinn í súpuröðinni verður fimmtudaginn 29. feb. kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Úlfarsárdal.
Við hvetjum alla FRAMarar og íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Allir velkomnir.