🎉 Miðasala á Þorrablót 113 hefst á föstudaginn kl. 10:00! 🎉
Eftir að hafa farið aðeins betur í saumanna á fyrra formi um að selja miða í Framheimilinu 2. nóv – hefur nefndin ákveðið að snúa við og breyta plani. Því biðjum við ykkur um að lesa póstinn vandlega.
Allir sem vilja tryggja sér borð á þessum stórskemmtilega viðburði eru beðnir um að senda póst á vidburdir@fram.is með eftirfarandi upplýsingum: Athugið: Miðasala opnar 10.00, föstudaginn 1. nóv. Allar beiðnir sem sendar verða fyrir 10.00 á föstdaginn verða ógildar og fá ekki svar.
Fram þarf að koma:
- Nafn:
- Kennitala:
- Sími:
- Netfang:
- Fjöldi borða:
📌Athugið: Aðeins seld 12 manna borð . Ekki verður í boði að bæta við stólum.
📌📌Athugið: Ekki verður hægt að velja ákveðið/ákveðin borð. Allir sem senda inn pöntun fá svarpóst með borðanúmeri/um sem viðkomandi hefur tryggt sér, auk reikningsupplýsinga. Pöntunin er staðfest þegar greiðsla hefur borist innan klukkutíma frá því að svarpósturinn er sendur. Ef greiðsla berst ekki innan tímarammans, fer borðið/borðin aftur í sölu.
kv. Nefndin