fbpx
vefur

Vel heppnaður súpufundur Fram í dag.

Við FRAMarar héldum í dag fyrsta súpufund vetrarins. Mætingin í dag var bara mjög ásættanleg.

Okkur telst til að það hafi verið  tæplega 40  menn og konur sem gæddu sér  á þessari líka fínu kjúklingasúpu.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar og íbúa hverfisins á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.

Framkonur og Þorbergur tóku sig til eftir matinn og þrifu alla bikarskápa félagsins.
Skáparnir voru þrifnir og bikarara pússaðir, þannig að allir okkar bikarskápar og allt sem í þeim er skartar sínu fegursta eftir yfirferð dagsins.
Kærar þakkir fyrir ykkar framlag í dag, sannarlega ómetanlegt.

Næsti súpufundur verður eftir áramót. Nánar auglýst síðar.

Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, gaman að fá ykkur í heimsókn, erum alltaf mjög þakklát fyrir hvað þessi uppákoma hefur heppnast vel.

Takk fyrir komuna og sjáumst í janúar 2025.


 ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!