Kæru Framarar
Íþróttamaður Fram 2024 verður útnefndur laugardaginn 14. desember kl. 13:00
Á 100 ára afmæli FRAM 2008 var ákveðið að taka upp þann sið að kjósa „Íþróttamann/konu ársins“ – aðila sem félagið telur að hafi náð afburða árangri í íþrótt sinni ásamt því að vera fyrirmynd FRAM innan vallar sem utan.
Tilkynnt verður um valið á “Íþróttamanni FRAM 2024″ í hófi sem verður haldið í veislusal FRAM, laugardaginn 14. des. kl. 13:00. að Úlfarsbraut 126, Íþróttamiðstöð Fram.
Þeir FRAMarar sem tilnefndir eru fyrir árið 2024 eru:
Alda Ólafsdóttir Knattspyrnudeild Fram
Frederico Bello Saraiva Knattspyrnudeild Fram
Freyja Eiríksdóttir Blakdeild Fram
Guðrún Nína Petersen Taekwondodeild Fram
Reynir Þór Stefánsson Handknattleiksdeild Fram
Rúdolf Konráð Rúnarsson Taekwondodeild Fram
Steinunn Björnsdóttir Handknattleiksdeild Fram
Örn Guðjónsson Blakdeild Fram
Knattspyrnufélagið Fram óskar öllu þessu glæsilega íþróttafólki til hamingju með tilnefninguna.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir og hvetjum við Framara til að mæta
Knattspyrnufélagið FRAM