fbpx
Roland vefur

Roland Eradze til liðs við Fram

Roland Eradze til liðs við Fram
 
Roland Eradze hefur verið ráðinn til Fram og mun á næsta keppnistímabili vera hluti af öflugu þjálfarateymi félagsins. Roland, sem hefur störf síðar í sumar, mun sinna aðstoðarþjálfun og markmannsþjálfun hjá meistaraflokki karla og kvenna, markmannsþjálfun yngri flokka, afreksþjálfun og öðrum verkefnum er snúa að þjálfun og uppbyggingu leikmanna.
 
Það er mikill fengur fyrir Fram að fá Roland til liðs við félagið. Hann á að baki farsælan feril sem leikmaður og þjálfari. Hann er fyrrverandi landsliðsmarkmaður og á að baki rúmlega 50 landsleiki fyrir Ísland. Roland hefur á liðnum árum verið þjálfari hjá ÍBV en hefur áður þjálfað hjá Fram, Stjörnunni og FH. Þá var hann um þriggja ára skeið aðstoðarþjálfari Úkraínska meistaraliðsins HC Motor sem spilaði meðal annars í Evrópudeildinni og Meistaradeild Evrópu árin þar á undan. Roland er einnig hluti af þjálfarateymi karlalandsliðsins og mun sinna því starfi áfram.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!